:

Flugeldarusl, sprengitertur og jólapappír til Sorpu, ekki í heimilissorpið!

Flugeldarusl

Um hver jól og áramót „framleiðum“ við gífurlegt magn af rusli. Til að minnka neikvæð áhrif af sorpi sem hlaðið er eiturefnum og óendurvinnanlegum ögnum, bendir Sorpa á bestu leiðirnar til að koma slíku rusli til endurvinnslu eða förgunar.

T.a.m. flokkast jólapappír með glimmeri og málmögnum ekki undir venjulegt pappírsrusl og verður að flokka sem óendurvinnanlegt sorp.
Í tilkynningu frá Umhverfissviði Reykjavíkur segir að búast megi við því að skotkökur og flugeldar liggi eins og hráviði um borgina á nýársmorgun og segir rekstrarstjóri sorphirðunnar að ekki sé æskilegt að setja skotterturnar í ruslatunnurnar.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. Dezember 2006 18:44
Ursprung:

Bewertung

Sitt af hvoru tagi - Fjáröflun Hjálparsveitanna

flugeldafani

Nú stendur hinn árlegi atburður „sprengjum gamla árið í tætlur“ fyrir dyrum. Sprengigleði landsmanna virðist aukast ár frá ári og hafa verð eða mengun þar engin áhrif á. Talið er að hér á landi verði skotið á loft þúsund tonnum af sprengiefni í ár.

Í stóra samhenginu eru áhrifin gífurlega neikvæð fyrir umhverfið og er í raun ófyrirgefanleg forheimskun að úða þessum eiturefnum út í andrúmsloftið, jarðveginn og í lungun á okkur. En viljinn til að sprengja og hrökkva í kút eitt og eitt augnarblik í senn og gapa af undrun og aðdáun yfir ljósarósum á lofti einn dag á ári, er kannski skárra en að sprengiþörfin brjótist út á enn neikvæðari hátt, út allt árið.
Kannski verðum við mennirnir að viðurkenna fyrir sjálfum okkur að við séum villidýr, getum ekki annað en unnið spellvirki á umhverfinu vegna árásargirni okkar, sem verður að fá útrás, hvað sem það kostar.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. Dezember 2006 01:06
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Að ræna Héraðsvötnum - Fundur Áhugahóps um verndun Jökulsánna í Skagafirði vel sóttur

Rúmlega tvö hundruð manns sóttu baráttufund fyrir verndun Jökulsánna í Skagafirði sem haldinn var í félagsheimilinu Árgarði, þriðjudagskvöldið, 28. 11. 2006 og var þar með orðinn húsfyllir. Á fundinum voru flutt erindi um náttúru, virkjanamál og framtíð Skagafjarðar og Sigurður Hansen bóndi og skáld í Kringlumýri flutti ljóð.

Fundurinn samþykkti ályktun um að skora á sveitarstjórnir Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps að gera ekki ráð fyrir virkjunum í Jökulsám Skagafjarðar í tillögum að aðalskipulagi.

 

þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. Dezember 2006 03:41
Ursprung: jokulsar.org

Bewertung

Svartolía og dísilolía úr tönkum Wilson Muuga endaði að hluta til í sjónum

Wilson Muuga Afdrif olíunnar í tönkum flutningaskipsins Wilson Muuga sem strandaði við Hvalsnes þann 20. 12. 2006 er nú loks ljós. Nokkrir tugir tonna velkjast nú í sjógangnum úti fyrir landi og á ströndinni. Umhverfisstofnun hefur af fremsta megni unnið að því að dæla olíu í tankbíla í landi og hefur nú bjargað 95 tonnum úr tönkum skipsins, sem telja má mikið happ. Slys af þessu tagi hefur ávallt mikil áhrif á umhverfið, þá sérstaklega á dýralífið, fugla og fiska. Að segja að „hættan á umhverfisslysi sé liðin hjá“ er þó kannski ekki alveg viðeigandi þar sem tugir tonna af olíu hafa nú þegar ratað í sjóinn, sem verður að teljast til umhverfisslyss.

þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
29. Dezember 2006 01:23
Ursprung: Umhverfisstofnun

Bewertung


details

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. Dezember 2006 17:03
Ursprung:

Bewertung

1234495051

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep   okt   nov   dez  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Fréttir frá: