:

Náttúran óskar gleðilegs árs

Náttúran er ehf. óskar öllum jarðarbúum nær og fjær farsældar í verkefnum komandi árs og sendir öllum lesendum, vildarmönnum, samvinnuaðilum, viðskiptamönnum, styrktaraðilum og starfsmönnum hugheilar áramótakveðjur.

Við manneskjurnar virðumst á krossgötum þegar hver árhringur lokast og ný r tekur við. Árið sem er að líða er tekið til rækilegrar skoðunar og einbeittur ásetningur betrunar og yfirbótar algengari en ekki. Táknmynd krossgötunnar var fyrr á tímum t.d. útfærð í sögusögninni um útisetur frá gamlárskvöldi til nýársmorguns. Sá sem standast myndi allar freistingar þessa nótt stæðu allar leiðir opnar upp frá því. Sjá frásögn Árna Björnssonar um áramót.

Hljómar eins og ágætis veganesti inní þessa nótt og árið 2008.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. Dezember 2007 19:31
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Matur úr heimabyggð vinningshafi ársins

Á árinu 2007 var umræðan um framtíð íslenskrar matargerðar og framleiðslu áberandi og er hún í samræmi við það sem er að gerast víða um heim þ.e. að fólk er farið að kunna að meta það sem tengist eigin menningu og sögu og er framleitt handan við hornið frekar er exótískan mat sem fluttur er að um langan veg. Lífrænn matur á meira að segja undir högg að sækja í samanburði við local food og slow food þ.e. ef hann er fluttur heimshorna á milli. Umhverfisáhrif af flutningunum einum saman geta verið miklu meiri en af hefðbundinni ræktun. Nú þegar er verið að undirbúa „sjálfbæra vottun“ sem tekur þá til allra umhverfisáhrifa sem hljótast af vörunni, frá framleiðslu til neytenda. Sjá grein.

Hugtök eins og; matur úr héraði, beint frá býli, hvannarlamb og listrænt fjallakonfekt eru örfá dæmi um það sem borið hefur verið á borð og verið áberandi skemmtilegt á árinu. Sem dæmi um áhugann sem er að vakna fyrir náttúrulegum tækifærum í mataragerð má nefna örfá dæmi:

Verkefnið Beint frá býli kynnti handbók um heimavinnslu í byrjun árs og er komið vel á skrið. Á árinu unnu nokkrir þátttakendur í verkefninu að tilraunaverkefnum í samvinnu við Listaháskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Útkoman var hreint út sagt frábær og er vonandi aðeins angi af því sem að við eigum eftir að sjá í framtíðinni. Sjá lista yfir þátttakendur í Beint frá býli hér á Grænum síðum.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. Dezember 2007 21:17
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Umhverfisverðlaun Ferðamálstofu 2007 til Hótel Önnu

GreenGlobeCertified150x150

Hótel Anna á Moldhnúpi undir Eyjafjöllum fékk í gær afhent umhverfisverðlaun Ferðamálstofu 2007. Country Hotel Anna var opnað árið 2002 og hóf ári seinna að aðlaga starfsemi sína umhverfisstjórnun skv. viðmiðum Green Globe sem eru alþjóðleg samtök sem vinna að umhverfismálum með ferðaþjónustuaðilum að vottun umhverfisvænna starfshátta. Sumarið 2006 náði Hótel Anna síðan fullnaðarvottun „Green Globe Certified“ Sjá frétt.

Ferðaþjónusta bænda – í fararbroddi í umhverfisvænni ferðaþjónustu, hefur á síðastliðnum árum hvatt félagsmenn til að stuðla að sjálfbærari ferðaþjónustu. Hótel Anna var annað fyrirtækið innan Ferðaþjónustu bænda sem fékk Green Globe fullnaðarvottun og eru fleiri félagsmenn að stefna að sama marki. Hótel Hellnar á Snæfellsnesi voru fyrsta hótelið á Íslandi til að fá fullnaðarvottun Green Globe hér á landi.

Sjá vef Hótel Önnu.
Sjá frétt um verðlaunahafann á vef Ferðamálastofu.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
29. Dezember 2007 11:47
Ursprung:

Bewertung

Náttúruverndarfélagaflóran íslenska

Náttúruverndarfélagaflóra íslandsFjöldi félaga sem koma að náttúruvernd á Íslandi eykst stöðugt sem vísar til gríðarlegs áhuga breiðs hóps landsmanna á að vinna að náttúruvernd. Hér er stutt og ófullkomið yfirlit yfir félagaflóruna og starfsemi félaganna en þau hafa flest ákveðna sérstöðu og verja ákveðna hagsmuni umfram aðra:
-

Umhverfisverndarsamtök á Íslandi:

þessi grein er lengri, lesa meira...



Ásta Þorleifsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir
29. Dezember 2007 05:50
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Fllugeldar og umhverfið

í gær birtist hér á Náttúrunni og víðar áskorun til hjálparsveita á landinu og snerist greinin fyrst og fremst um að koma af stað umræðu um einhverskonar ábyrgð söluaðila á umhverfisáhrifum af viðskiptum sínum. Þar sem að umræðan um umhverfisáhrif af flugeldadýrkun landsmanna virtist ekki ætla að hrökkva í gang hvorki hjá fréttamiðlum né opinberum aðilum þótti okkur nauðsynlegt að hrinda henni úr vör.

Málið snýst fyrst og fremst um það að allir taki ábyrgð á sínum gjörðum, þeir sem selja, þeir sem kaupa, þeir sem sjá um sorpið og ekki síst þeir sem eiga að sjá um umhverfismennt í þjóðfélaginu. Náttúran.is er einmitt einn af þeim aðilum sem að vilja sjá um það síðastnefnda, þ.e. upplýsa um umhverfismál. Hluti af upplýsingagjöf og skapandi umræðu byggir á því að velta upp möguleikum um úrlausnir eða betrumbætur. Þúsund tonn af eiturefnum og úrgangi kemur okkur öllum við og fyrst á dagskrá er að skoða stöðuna eins og hún er í dag.

Undanfarin ár hefur mikil aukning orðið í sölu flugelda en jafnframt hafa einkaaðilar komið inn á svið sem að björgunarsveitirnar töldu sitt áður. Þetta gremst þeim því að sala flugelda er aðaltekjulind sveitanna. Þó má segja að með aukinni samkeppni hafi aukning í sölu fylgt í kjölfarið svo það er ekki víst að minni peningar komi í kassann en áður.

Nú á tímum mikillar umhverfisvakningar um allan heim og á öllum sviðum neyslu og viðskipta þarf að taka til endurskoðunar þá mengun sem mennirnir bera ábyrgð á. Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki í framleiðslu, þjónustu og sölu verða því að taka ábyrgð á gjörðum sínum. Ef allir taka ábyrgð gengur dæmið upp, annars ekki. Þetta eru staðreyndir málsins.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
27. Dezember 2007 14:41
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

1234175176177

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep   okt   nov   dez  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Fréttir frá: