Nachrichten

Vín af berjum

Vínguðinn Díonýsus átti erfitt í æsku. Seifur eignaðist hann með gyðjunni Semele en Hera fyrirgaf ekki framhjáhaldið og gerði stráknum allt til miska. Amma hans, Rea móðir Seifs, reyndist honum þó vel. Díonýsus uppgötvaði vínið og eftir það gerði Hera hann vitstola. Þá tók hann að ferðast vítt um veröldina, allt til Indlands og aftur heim. Ferðir hans, sem tengdust útbreiðslu vínsins, og athæfi fylgjenda hans var þrungið vitfirringu og því sem í dag þættu heldur groddaleg partí, eins og þegar konur ærðust og engum var óhætt að verða á vegi þeirra, því þær slitu menn í sundur svo minnir helst á íslenskar skessur í æðiskasti.

Vín var fyrst flutt inn til Grikklands frá Kýpur en villt uxu vínber á suðurströnd Svartahafsins. Það er talað um að Díonýsus hafi verið haltur, enda máltæki að menn hafi fengið í fótinn þegar þeir hafa smakkað það. Satýrar hétu fylgisveinar Díonýsusar, nokkurs konar landsbyggðarpúkar, stundum hálfir mennskir og hálfir hestar, eða þeir höfðu hærða leggi eða geitabrjóst. Þeir eltu dísirnar, lifðu makindalega, sváfu ýmist í sólinni eða svölum hellisskútum og voru kunnir fyrir kerskni og kvennafar. Af þeim er dregið nafnið satíra eða háðsádeila, sem segir dálítið um innrætið. Það eru fleiri en Hera sem hafa horn í síðu Díonýsusar og telja hann brjálæðing. Þrátt fyrir það hefur víngerð heillað manninn lengi og Vínland ekki nefnt svona út í bláinn.

Hannes Lárusson myndlistarmaður og kona hans Kristín Magnúsdóttir fara til berja á hverju hausti vopnuð tínum, venjulegum rafmagnsblöndungi og 25 lítra glerkútum. Við erum fljót að þessu, segir Hannes og gefur mér lýsingu. Ég fékk líka smakk frá fyrra ári og flýtirinn virðist ekki til vansa. Talið barst að merkingum því Hannes var orðinn svolítið óviss um hvað var í hverri flösku. Segist hættur að merkja með fínu miðunum og setja í mesta lagi litaða límpappírsdoppu og krota á árið. Rautt (eins og sölumiði á málverkasýningu) fyrir rifs. Gult fyrir hunangsmjöð sem Hannes gerir með mjaðjurt að sjálfsögðu. Blátt og grænt fyrir lyng- og heiðaber. Kristín sagðist merkja pokana með frystu jurtunum þeirra á sama hátt með litaðri teygju. Mismunandi lit fyrir hverja sort og losna þannig við að skrifa.

Berjavín Hannesar:


Tínið slatta af berjum og hreinsið aðeins lítillega, lyngið gefur líka bragð. Mega vera krækiber, bláber eða annað en blandið ekki saman tegundum. Rafmagnsblandarinn er með í för og berin eru sett í hann og „maukað“ eins hratt og vélin ræður við. Maukinu – allt að 7 lítrum – er komið í 25 lítra glerkút, alls ekki plastíláti.

Í þetta fara 6 kg af sykri sem leystur hefur verið upp í heitu vatni og
4 muldar camdemtöflur leystar upp í vökva. Fyllt upp með kranavatni svo kúturinn verði ca. 3/4 fullur. Látið standa í 1–2 sólarhringa við stofuhita.
Ger sett í – gjarnan hlutlaust eins og kampavínsger 1 pakki (eða samkvæmt leiðbeiningum nægjanlegt fyrir 25 lítra).
Má setja í 1–2 kg rúsínur ef vínið er dökkt eða súltanínur ef vínið er ljóst. Rúsínurnar má líka setja í blöndunginn. Vel þroskaðir bananar (ca. 5–6 í 25 lítra) gefa berjavíni fyllingu, t.d. rifsberjavíni, og hunang líka. Ef hunang er notað, þá er hæfilegt að nota ca. 2 kg af hunangi á móti 4 kg af sykri. Bláberjavín þarf ekki fyllingu.

Lokið með plasti og teygju um stútinn (eða gerlási). Látið standa við stofuhita. Hrist nokkrum sinnum á dag. Gerjun ætti að vera hröð og áköf og efnin á botninum lyftast. Þegar hægist um hröðustu gerjunina, eftir viku til tíu daga, er vökvinn síaður frá gegnum rör yfir í annað ílát. Hratið fjarlægt og kúturinn þveginn vel. Fyllsta hreinlætis þarf að gæta við öll ílát þegar lagt er í vín. Vínið sett aftur á kútinn sem nú verður að loka með góðum gerlás. Fyllt upp með vatni í axlarhæð á kútnum. Látið standa við stofuhita fram að jólum eða þorra. Þegar vínið er útgerjað byrjar það að botnfalla. Umhellið þá aftur eins og áður og hendið botndreggjum. Lokið enn með gerlási og fyllið kútinn upp með vatni. Geymið óhreyft, helst á köldum stað, til næsta hausts.

Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.

Myndin er af Hannesi og Kristínu við Íslenska bæinn, en þau stofna nú menningarsafn sem nefnist Íslenski bærinn. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.




Bewertung

Kategorien:
0 Kommentar:

Kommentiere

Name:

Kommentare:


Bitte lösen Sie die matematische Aufgabe hier oben und schreibe die Antwort in das Feld.
Gemacht um die menschliche herkunft des Textes zu sichern

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Ähnliche Texte:

Mutter Natur: Der Kräuter-Beutel [27]

Mutter Natur: Vegetation & Ernte [219]

Mutter Natur: Im Kessel [118]

Nahrung: Rezepte [144]

Grüne Seiten:

Neue Kommentare:

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

Fréttir frá: