Nachrichten
Hvað á að segja við plönturnar?
Það er sagt að klukkustund í garðinum á dag sé tíminn sem þarf til að sinna honum og ég held þetta sé satt. Vegna veðurlagsins virkar þetta þó ekki svona. Vinnan dreifist ekki jafnt. Margir dagar henta ekki til útivinnu en aðra daga slítur maður sig ekki frá garðinum. Svo má aðskilja það sem kallast getur vinna frá því sem ég vildi skilgreina sem eftirlit eða öllu fremur samvistir við plönturnar. Það þarf ekki að tala við þær beint en þær vaxa betur ef við lítum eftir þeim og veitum þeim athygli. Blómkál og hvítkál vill áburðarvatn einhvern tímann á sumrinu. Salat og grænkál vill láta snyrta sig til að geta haldið áfram að vaxa fram á haustið. Plönturnar eru þakklátar ef veikir einstaklingar og sölnuð lauf eru tekin burt og þær vilja gefa af sér eða með sér, fegnar sumar ef stóru blöðunum er létt af þeim svo þær geti sett kraft í þau minni. Þær heyra ef talað er vel um þær.
Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.
Myndin er af rauðrófum í Eldhúsgarðinum þ. 22.07.2009. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Bewertung
- Bauernkalender
- Kalender
- Der Küchengarten
Ähnliche Texte:
Bauernkalender: Sommer und Winter [91]
Kalender: Bauernkalender [106]
Der Küchengarten: Planung [11]
Grüne Seiten:

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Ereigniskalender

Neue Kommentare:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:















