Nachrichten

Finndu grænu leiðina með aðstoð Græna Íslandskortsins

Grænt Íslandskort en samvinnuverkefni Náttúran.is og alþjóðlega verkefnisins Green Map® System og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands. Græna Íslandskortið byggist á flokkunarkerfi Green Map og umfangsmikilli forvinnu Náttúran.is við skráningar aðila á Grænar síður™ en verkefnið snýst um að finna og kortleggja vistæna kosti í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi. Kortið birtist á íslensku á Náttúran.is, á ensku á Nature.is og á þýsku á Natur.is í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum, vottunartengingum og efnisgreinum sem tengjast viðkomandi á einn eða annan hátt. Um 3.000 skráningar eru nú þegar á kortinu undir 100 skilgreindum flokkum. Fyrsta prentútgáfan Grænt Reykjavíkurkort var gefið út haustið 2010 og önnur útgáfa kom út í júlí 2011.  Tilgangur kortsins er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt. Þeir sem vilja skrá sig á græna kortið láti vita af sér á nature@nature.is. Grunnskráning er ókeypis!

Skoða Græna Íslandskortið (á íslensku), Green Map Iceland (á íslensku)og Green Map Island (á þýsku)

Á myndinnni hér að ofan sjást nokkrir af flokkum græna kortsins. Talið frá vinstri (með skilgreiningum):

Vernduð svæði- Náttúruvætti, þjóðgarðar, friðlönd og svæði sem njóta verndar út frá jarðfræðilegum sérkennum.

Barnvænn staður- Svæði sem hefur athyglisvert umhverfi og er öruggt og opið fyrir börn.

Grasþak - Grasþök eru aftur að verða algengari í mörgum löndum. Bæði á háhýsum og sveitabýlum eða frístundahúsum. Á Íslandi er sterk hefð fyrir grasþökum enda hluti af byggingarhefð torfbæjanna. Grasþök eru umhverfisvæn m.a. að því leyti að þau kæla og hreinsa loftið, eru ágætis eldvörn í húsum og endurvinna regnvatn. Grasþök í borgum auka lífsgæði og yndisauka á mölinni.

Menningarsetur- Staðir sem á ýmsan hátt eiga snaran þátt í umhverfi, menningu og ímynd borga og sveita. Slíkir staðir þurfa ekki endilega að vera stofnvæddir og geta verið í formi minnismerkja eða jafnvel tímabundinna atburða )svo sem mánaðarlegir útimarkaðir eða árlegar umhverfis hátíðir).

Orkusparnaður - Vettvangur, þjónusta, verkefni eða vörur sem lágmarka orkunotkun.

Lífrænn landbúnaður - Lífræn bújörð eða framleiðandi með lífræna vottun frá Vottunarstofunni Tún. Einnig þær verslanir sem sérhæfa sig í sölu á lífrænum vörum.

Vefmiðlun um umhverfismál - Vefslóðir (eða krækjur) á síður með góðar staðbundnar upplýsingar um ýmiskonar umhverfismál. Síðurnar eru tengdar fleiri grænum síðum sem tengjast vistvænu líferni og umhverfisvernd.

Heilsusamlegur matsölustaður- Áhersla er lögð á hollan og ferskan mat. Hráefni eru gjarnan lífrænt ræktuð og grænmetisréttir eru í boði. Kjötafurðir koma af dýrum sem hafa verið ræktuð frjáls (free range) við kjöraðstæður. Innan þessa flokks hafa sumar borgir flokkað sameignar kaffihús og ýmis konar þjóðlega matarmenningu.

Umhverfisfræðsla - Allt frá skipulögðu námi á öllum skólastigum til einstakra námskeiða og fyrirlestra ætluðum almenningi.

Leiga og skipti - Staður þar sem hægt er að leigja hjól eða umhverfisvæn farartæki eða vefur þar sem hægt er mæla sér mót og verða samferða í bíl með öðrum á forsendum þess að tekið sé þátt í kostnaði.

Umhverfisstýrt fyrirtæki- Fyrirtæki sem hafa ISO 14001 vottun.





Bewertung

Kategorien:
0 Kommentar:

Kommentiere

Name:

Kommentare:


Bitte lösen Sie die matematische Aufgabe hier oben und schreibe die Antwort in das Feld.
Gemacht um die menschliche herkunft des Textes zu sichern

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Grüne Seiten:

Kräuter-Medikamente mischen [1]

Kräutermedizin für Kinder [1]

Wilde Kräuter sammeln [1]

Neue Kommentare:

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

Fréttir frá: