Nachrichten
Ræstingarþjónustan Hreint er komið með Svansvottun
Hreint ehf hefur fengið vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins fyrir ræstingarþjónustu. Strangar kröfur Svansins tryggja að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa starfseminnar.
Aðstoðarmaður umhverfisráðherra veitti leyfið föstudaginn 25. júní, klukkan 11:00 á aðalskrifstofu fyrirtækisins að Auðbrekku 8 í Kópavogi. „Það er okkur hjá Umhverfisráðuneytinu gleðiefni að sjá að stöðugt fleiri íslensk fyrirtæki bætast í fríðan flokk Svansvottaðra fyrirtækja. Með því að uppfylla kröfur Svansins tryggja fyrirtækin að vörur þeirra og þjónusta lágmarki neikvæð áhrif á umhverfið. Þetta er auðvitað sérstaklega mikilvægt í geira eins og ræstingum þar sem notkun sterkra og skaðlegra efna eru oft hluti starfseminnar. Það má því segja að Svansvottun Hreint færi okkur enn einu skrefinu nær hreinni og heilnæmari heimi og því ber sannarlega að fagna.“ segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Sjá fyrirtækin níu sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.
Sjá þá vöruflokka sem eru í boði af Svansvottuðum vörum hér á landi undir „Vörur/Vottað Svanurinn“ en í hverjum flokki finnur þú hvaða fyrirtæki flytja inn/dreifa viðkomandi vöruflokki og hvað vörurnar heita. Sé varan til nákvæmlega skráð til sölu eða kynningar er hana að finna í Svansbúðinni hér á Náttúrumarkaði. Samsvarandi flokkur er fyrir þjónustuflokkana undir „Þjónusta/Vottað Svanurinn“ hér á Grænum síðum.
Um Hreint
Hreint ehf. er íslenskt fyrirtæki sem var stofnað 12. desember 1983 og er eitt elsta og stærsta ræstingaþjónustufyrirtæki landsins. Fyrirtækið sérhæfir sig í að þjóna fyrirtækjum og stofnunum með reglulegri ræstingu og tengdri þjónustu. Starfssvæði þess er höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Akranes, Hveragerði og Selfoss. Hreint er meðal 300 stærstu fyrirtækja landsins en á síðustu 8 árum hefur fyrirtækið vaxið 8 sinnum að veltu og er nú annað stærsta fyrirtækið á þessu sviði hérlendis. Starfsmenn eru um 130 en þar af starfa 115 við ræstingar. Framkvæmdastjóri Hreint Ari Þórðarson segir: „Í öllu okkar starfi leggjum við áherslu á gildin okkar sem eru; frumkvæði, samvinna, traust og fyrirmynd. Frá formlegri vottun Svansins hefst nýr kafli í sögu og þróun Hreint enda um tímamót að ræða. Sem fyrirtæki teljum við að Svanurinn er sé mjög mikilvægt skref til frekari gæðaaukningar á mörgu í starfseminni, aukinni umhverfisvernd, vexti og aukinni arðsemi rekstrarins.”
Kröfur Svansins fyrir ræstiþjónustur:
- Strangar kröfur um efnanotkun. Að minnsta kosti 50% hreinsiefna verða að vera umhverfismerkt, bann við notkun efna sem eru skaðleg umhverfinu og heilsu fólks. Heildarnotkun efna er lágmörkuð með réttri skömmtun.
· Mengun vegna flutninga fyrirtækisins er lágmörkuð með kröfu um nýlegan bílaflota sem uppfyllir kröfur um útblástur.
· Lögð er áhersla á að lágmarka notkun plastpoka, flokka úrgang og velja umhverfismerktar vörur í innkaupum.
· Gæði ræstingar eru tryggð með reglulegri þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að fylgjast með gæðum þjónustunnar.
6. Jul. 2010 18:22
Ursprung: Náttúran.is / Umhverfisstofnun
Zurück
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Kategorien:
- Vorreiter
- Die Gesellschaft
- Die Umwelt
- Zertifiziert vom Schwan
- Zertifikation

Der Natur-Markt
Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?- Waren
- Kategorien
- Korb
- Suche nach Waren
- Normen
- Bedingungen

Ähnliche Texte:
Vorreiter: Vorkämpfer [21]
Vorreiter: Firmen mit Öko-Siegeln [25]
Die Gesellschaft: Umweltbedingt [937]
Die Umwelt: Öko-Normen [53]
Zertifiziert vom Schwan: Reinigung [3]
Zertifikation: Der Schwan [54]
Zertifikation: Öko-Siegeln [45]
Grüne Seiten:
Vorkämpfer [2]
Firmen mit Öko-Siegeln [5]
Umweltbedingt [25]
Öko-Normen [1]
Reinigung [5]
Der Schwan [17]
Öko-Siegeln [32]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Ereigniskalender

Ábending frá veðurfræðingi
Frystir víða við yfirborð nú síðdegis og myndast lúmsk ísing þar sem vegir eru blautir, einkum sunnan- og vestalands. Þá er spáð snjómuggu eða slyddu um tíma í kvöld víða suðvestantil, um Borgarfjörð og norður í land með smálægð sem fer hratt norðaustur yfir landið.Færð og aðstæður
Hálka og éljagangur er á Sandskeiði, Þrengslum og Hellisheiði. Hálka eða hálkublettir eru nokkuð víða á Suðurlandi.Á Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka á helstu fjallvegum en hálkublettir á láglendi. Flughált er á Bjarnarfjarðarhálsi og norður í Gjögur.
Hálka er í Húnavatnssýslum og á Þverárfjalli annars er að mestu autt á Norðurlandi.
Vegir eru auðir á Austurlandi en snjóþekja er nokkuð víða á Suðausturlandi.
Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru nú víða um land.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Neue Kommentare:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/













