Der Garten: Pflanzung

The WindowPlantsHooveringBooksBooksElectrical GadgetsElectrical GadgetsThe GlobeThe TelescopeFurnitureSportsThe DeskThe TelephoneThe ComputerThe CountryLightingThe Office
husid_skrifstofan
CursorBeim Anklicken der Gegenstände auf dem Bild erscheinen weitere Informationen

Skrifstofan - Plöntur

Síðan að við mannfólkið fórum að hreiðra um okkur innan dyra hafa plönturnar fylgt okkur eftir. Nálægð við gróðurinn er mikilvæg á margan hátt. Plöntur þjóna því hlutverki í náttúrunni að fylla loftið af súrefni* svo að á jörðinni þrífist líf. Plöntur innan dyra auka súrefnisflæði, jafna rakastigið og hreinsa eiturefni úr loftinu. Það er sérstaklega mikilvægt að hafa plöntur þar sem mikið af rafmagnstækjum eru í gangi t.d. á skrifstofunni.

*Með ljóstillífun grænna plantna er koltvíoxíð (CO2) úr andrúmsloftinu notað til að mynda kolvetni eða sykrur. Um leið er vatnssameind (H2O) klofin í frumum til að halda uppi ljósttilífun og afleiðing þess er sú að súrefni (O2) losnar.
Talið er að jörðin hafi verið súrefnislaus fyrir 3,5 milljónum ára en síðan hafi smám saman myndast súrefni við ljóstillífun örvera. Nú er súrefni um 21% í andrúmsloftinu.


details

Náttúran er
30. Januar 2012 16:20
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Sáðalmanak fyrir febrúar 2012

Fyrsta sáðalmanak fyrir árið 2012 lítur nú dagsins ljós en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tók saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar í fyrra og heldur áfram að taka þau saman fyrir okkur í ár.

Efnið er unnið úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur  Tími

1.  febrúar   00 – 04 ávöxtur, 05 – 24  rót
2.  febrúar   00 – 17 rót, 17 – 24 óhagstætt
3.  febrúar   00 – 24 rót
4.  febrúar   00 – 04 rót,  05 – 24 blóm
5.  febrúar   00 – 24 blóm
6.  febrúar   00– 04 blóm, 05 – 24 blað
7.  febrúar   00– 20 blað, 21 – 24 ávöxtur
8.  febrúar   00 – 24 ávöxtur
9.  febrúar   00 – 12 ávöxtur, 13 – 24 óhagstætt
10. febrúar  00 – 04 óhagstætt, 05 – 08 ávöxtur, 09 – 24 rót
11. febrúar  00 – 05 rót, 05 – 24 óhagstætt
12. febrúar  00 – 24 rót
13. febrúar  00 – 12 rót, 14 – 24 blóm
14. febrúar  00 - 18 blóm, 19 –24 óhagstætt
15. febrúar  00 – 24 óhagstætt
16. febrúar  00 – 17 óhagstætt, 18 – 24 blað
17. febrúar  00 – 24 ávöxtur
18. febrúar  00 – 24 ávöxtur
19. febrúar  00 – 05 ávöxtur,  06 – 24 rót
20. febrúar  00 – 24 rót
21. febrúar  00 – 09 rót, 10 – 24 blóm
22. febrúar  00 – 24 blóm
23. febrúar  00 – 20 blóm, 21 – 24 blað
24. febrúar  00 – 24 blað
25. febrúar  00 – 13 blað, 14 – 24 óhagstætt
26. febrúar  00 – 24 óhagstætt
27. febrúar  00 – 24 ávöxtur
28. febrúar  00 – 13 ávöxtur, 14 – 24 rót
29. febrúar  00 – 19 rót, 20 – 24 óhagstætt

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur. Upplýsingarnar eru úr garðabók Maríu Thun.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáðalmanak fyrir febrúar 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.


details

Guðfinnur Jakobsson / Guðrún Arndís Tryggvadóttir / Hildur Hákonardóttir
24. Januar 2012 18:32
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

PlaygroundFlowersDomestic AnimalsDomestic AnimalsDomestic AnimalsCompostRecyclingTreesSmáfuglarSmáfuglarThe Gardenhusid_gardurinn
CursorBeim Anklicken der Gegenstände auf dem Bild erscheinen weitere Informationen

Garðurinn - Leikvöllur

Börn sem leika sér úti eru að jafnaði hraustari en þau sem hanga mikið inni við. Hreint loft og átök við náttúruleg efni er uppbyggjandi fyrir alla, jafnt börn sem fullorðna. Ef aðstaða er til að koma fyrir sandkassa er það þess virði því sandurinn er eins og leir fyrir hugmyndaflug barnsins. Úr sandi má allt gera og ímyndunaraflið fær algerlega lausan tauminn. Það þarf ekki meira en svalir til að koma fyrir litlum sandkassa.

Ef garðskiki er fyrir hendi er róla, kofi eða rennibraut góð viðbót því börn una sér hvergi betur en þar sem þau hafa öryggi og frelsi til að skapa sér sinn eigin heim og hreyfa sig. Mikilvægt er þó að leiktækin fylgi þroska barnsins sem best og öryggi sé alltaf sett á oddinn. Leiktæki úr þykku plasti geta ekki talist umhverfisvæn og brotna seint eða aldrei niður. Viðurinn stendur aftur á móti alltaf fyrir sínu og er auk þess endurvinnanlegt efni. Þegar sandkassinn eða kofinn hafa þjónað tilgangi sínum má alltaf gera eitthvað annað úr honum.

 


details

Náttúran er
2. Oktober 2011 11:51
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Sáðalmanak fyrir júlí 2011

Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti heldur áfram að taka saman fyrir okkur efni úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs síðastliðin 60 ár a.m.k. og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Júlí 2011

Dagur  Tími

1. júlí      00 – 24 blóm
2. júlí      00 – 16 blóm, 17 – 24 blað
3. júlí      00 – 24 blað
4. júlí      00 – 04 blað, 05 – 08 ávöxtur, 10 – 19 blóm, 21 – 24 blað
5. júlí      óhagstæðir
6. júlí      dagar
7. júlí      til
8. júlí      sáningar
9. júlí      00 – 24 blóm
10. júlí    00 – 24 blóm
11. júlí    00 – 03 blóm, 04 – 24 blað
12. júlí    00 – 24 blað
13. júlí    00 – 10 blað
14. júlí    00 – 24 ávöxtur
15. júlí    óhagstæður
16. júlí    00 – 11 óhagstæður, 14 – 24 rót
17. júlí    00 – 21 rót, 22 – 24 blóm
18. júlí    00 – 24 blóm
19. júlí    00 – 22 blóm
20. júlí    00 – 24 blað
21. júlí    00 – 13 blað, 14 – 24 blóm
22. júlí    00 – 02 blóm, 04 – 24 blað
23. júlí    00 – 02 blað, 04 – 24 ávöxtur
24. júlí    00 – 24 ávöxtur
25. júlí    00 – 02 ávöxtur, 03 – 24 rót
26. júlí    00 – 24 rót
27. júlí    00 – 17 rót, 18 – 24 blað
28. júlí    00 – 10 blóm, 11 – 24 óhagstætt
29. júlí    00 – 09 ávöxtur, 10 – 24 blóm
30. júlí    00 – 24 blað
31. júlí    00 – 12 blað, 14 – 20 ávöxtur, 21 – 24 blað

1. til og með 12. júlí hagstætt tímabil til útplöntunar og uppskeru rótarávaxta á „rótardögum“, 13. til og með 26. júlí hagstætt til söfnunar blað og blómjurta og þá á „blað- eða blómadögum“, 27. til og með 31. aftur hagstætt til útplöntunar og uppskeru rótarávaxta.

Sjá nánar um það hvaða plöntur teljast til rótar, blaða, blóma og ávaxta hér.

Grafík: Sáðalmanak fyrir júlí 2011. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðjurt, brún fyrir rótarávöxt og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils. Guðrún A. Tryggvadóttir.


details

Guðfinnur Jakobsson
1. Juli 2011 09:50
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Aðgerðir til að styrkja gróður á öskufallssvæðum

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 40 milljónum til styrkingar gróðurs á þeim svæðum þar sem mikið öskufall varð í eldgosinu í Grímsvötnum í vor. Markmiðið með verkefninu er að hefta öskufok á þessum svæðum á næstu misserum.

Þrátt fyrir að veður og vindar hafi verið hagstæðir og feykt töluverðri ösku á haf út í kjölfar gossins er enn töluverð aska á öskufallssvæðunum sem sest hefur til á jörðinni eftir rigningar. Gera má ráð fyrir því að þessi aska fjúki upp þegar þornar og hvessir.

Reynslan frá gosinu í Eyjafjallajökli sýnir að draga má verulega úr öskufokshættu með styrkingu gróðurs í byggð. Þetta er ekki síst brýnt í Fljótshverfi austan við Kirkjubæjarklaustur þar sem mesta askan féll, en íbúar þar mega búast við reglulegu öskufoki næstu mánuði og misseri verði ekkert að gert. Sömuleiðis skapar öskufokið slysahættu á hringveginum á þessu svæði.

Því hefur Landgræðslan lagt til að gripið verði strax til aðgerða til að draga úr öskufokinu sem fælust í sáningu, áburðargjöf og annars konar gróðurstyrkingu.

Til viðbótar við 40 milljóna króna fjárveitingu ríkisstjórnarinnar áætlar Landgræðslan að verja 7,5 milljónum króna til viðbótar til verkefnisins með nýrri forgangsröðun verkefna hjá stofnuninni.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir þetta gríðarlega mikilvægt skref í þágu þeirra sem búa á áhrifasvæði eldgossins í Grímsvötnum og væntir þess að Landgræðslan sinni þessum mikilvægu verkefnum í góðu samstarfi við íbúa á svæðinu. Ráðherra telur brýnt að stjórnvöld bregðist hratt og örugglega við þegar um áföll af þessu tagi sé að ræða og því sé þetta verkefni í algjörum forgangi.

Ljósmynd: Hvönn vex upp úr gjósku undir Eyjafjöllum. Guðrún A. Tryggvadóttir.


details

Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
10. Juni 2011 13:47
Ursprung: Umhverfisráðuneytið

Bewertung

123456

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: