Das Land: Reisen

Jarðfræðiferð um Torfajökulssvæðið endurtekin

TorfajökulssvæðiðLandvernd hefur nú ákveðið að bæta við einni jarðfræðiferð til viðbótar um Torfajökulssvæðið 13.-15. ágúst en fyrri ferðin 7.-9. er uppbókuð. Leiðangurinn er eins og hinn fyrri skipulagður í samvinnu við Hálendisferðir og farinn í fylgd jarðfræðinganna Sigmundar Einarssonar og Kristjáns Jónassonar.
Á Torfajökulssvæðinu sem er eitt mesta háhitasvæði í heimi er stórbrotið landslag hvera, lauga og líparítfjalla. Svæðið er víðáttumikið og sum þeirra svæða sem við skoðum eru lítt þekkt þrátt fyrir að Laugavegurinn, fjölfarnasta útivistarsvæði hálendisins, liggi þar um. Gist verður í tvær nætur í Dalakofanum í Vestur-Reykjadölum og allur matur innifalinn.
Enn eru nokkur sæti laus og hægt að bóka sig í síma 8640412 eða með tölvupósti info@halendisferdir.is

Tilgangurinn með ferðinni er sem fyrr að skoða hið stórfenglega landslag háhitasvæðisins frá sjónarhorni náttúruverndar. Jarðfræðingarnir Kristján og Sigmundur starfa hjá Náttúrufræðistofnun og höfðu þeir með höndum að rannsaka svæðið út frá verndargildi þess í tengslum við gerð rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða sem nú er til afgreiðslu á þingi.
Ferðaáætlun fyrir Torfajökulssvæðið.

Ljósmynd frá Torfajökulssvæðinu af vef Landverndar.


details
Landvernd
10. August 2010 22:32
Ursprung: Hálendisferðir / Landvernd

Bewertung

Vefsjár og upplýsingakort á Íslandi

Á Íslandi er til aragrúi upplýsingakorta og vefsjáa með upplýsingum um allt milli himins og jarðar, allt frá staðsetningum brunahana í Reykjavík; reykjavik.is/borgarvefsja til upplýsinga um fjölda einstaklinga á biðlista um pláss á öldrunarheimilum í Kaldrananeshreppi: heilsuvefsja.is.

Mest notuðu kortin eru þó líklega kort sveitarfélaga þar sem íbúar geta nálgast upplýsingar um sína heimabyggð sem og vefsjár sem þjónusta ferðamenn eins og t.d; nat.is og enjoyiceland.is

Flestar eiga þessar vefsjár það sameiginlegt að vera mjög einfaldar í notkun og flestar eru þær með mjög líkt notendaviðmót og bjóða uppá svipaða möguleika til upplýsingaöflunar.  Eitt eiga þær einnig mjög margar sameiginlegt en það er hve ófullkomnar upplýsingar eru á þeim. Svo virðist sem margar stofnanir og sveitarfélög hafi ákveðið að koma sér upp vefsjá á internetinu en gleymt eftirfylgninni, þ.e að koma öllum upplýsingum inná vefsjána. Augljóst má vera að með þessu móti eru vefsjárnar oft hvorki fugl né fiskur og í raun stundum bara tímasóun að skoða þær. 

Frá ofangreindu eru sem betur fer undantekningar eins og glögglega má sjá á þessum vef:  reykjavik.is/borgarvefsja. Hann er sérstaklega vel unnin og aðgengilegur og greinilega reglulega uppfærður með nýjustu upplýsingum.

Náttúran.is aftur á móti er með kort sem að mörgu leiti sameinar öll önnur kort sem til eru, auk þess sem það er með upplýsingar sem eru einstakar á Íslandi. 

Græna Íslandskortið/Green Map á natturan.is er unnið samkvæmt hugmyndafræði greenmap.org sem gengur út á skráningu og kortlagningu svæða í borgum, bæjum og löndum með hugmyndir umhverfisstefnu og sjálfbærni að leiðarljósi. 

Náttúran hefur í dag skráð á korti sínu yfir 2.500 aðila á landinu öllu, tengda eftir mismunandi yfirflokkum sem eru 12 að tölu eins og Menning, Útivera, Umhverfisupplýsingar o.fl. Undirflokkar eru 97 að tölu, dæmi um undirflokka eru t.d: Grænir skólar (107), óhefðbundnar lækningar (45), útsýnisskífur á landinu (39), menningarsetur (189), leiksvæði í náttúrunni og margt fleira.

Allar skráningar á Náttúran.is eru fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum að kostnaðarlausu. Þann 1. júní sl. var opnað fyrir þann möguleika að fyrirtæki gætu keypt ítarlegri skráningar um sig og sína vistvænu þjónustu á Grænum síðum sem er grunnurinn fyrir flokkun Græna Íslandskortsins.

Ljóst er að græn kort Náttúrunnar eru að mörgu leiti lengra komin en flest önnur kort á Íslandi, sérstaklega hvað varðar fjölda skráninga og ekki síður hvað varðar fjölda grænna skráninga en í þeim skráningum kemst engin með tærnar þar sem Náttúran.is er með hælana.


details
Magnús Matthíasson
17. Juli 2010 15:18
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

PaintHreyfilhitariTiresTiresThe CarThe BicycleVatnsnotkunTiresHeatingElectricityFuelHreinsiefniVerkfæriEiturefniLightingTravellingGeymsla
Beim Anklicken der Gegenstände auf dem Bild erscheinen weitere Informationen

Bílskúrinn - Ferðalög

Umhverfisvæn ferðamennska hefur þróast mikið á undanförnum árum. Ágangur ferðamanna getur verið ákaflega umhverfisspillandi ef ekki er hugsað um hvernig best er tekið tillit til náttúrunnar. Þetta getur átt við hvað sem er því allt sem við gerum hefur einhver áhrif á veröldina í kringum okkur.

Af hverju að fara langt þegar þú getur notið góðs sumarfrís í næsta nágrenni. Alltof margir ferðast um hálfan hnöttinn en gleyma að ferðast um sitt eigið land. Útivera er ein skemmtilegasta leiðin til að halda sér og fjölskyldu sinni heilbrigðri og léttri í lund. Ferðalög þurfa ekki að vara lengi en það getur verið yndisleg upplifun fyrir fjölskylduna að komast aðeins út fyrir borgina eða bæinn og út í náttúruna. Keyrið varlega og njótið þess að skoða út um gluggan það sem fyrir augum ber. Áður en þið leggið af stað er ráðlagt að gera lista yfir hluti sem þarf að taka með, staði sem á að sjá o.fl.

Best er að reyna að takmarka hluti sem þið takið með. Ráðlegt er að notast aðeins við fjölnota umbúðir fyrir matvæli og hluti. Ef að vaska þarf upp eða þvo föt úti í náttúrunni er best að notast við umhverfismerkt þvottaefni og uppþvottalög. Reynið að þvo ekki mikið upp úr ám eða lækjum, oft er hægt er að notast við vaska á tjaldstæðum.

Mikilvægt er að sýna náttúrunni virðingu, í því felst að skilja ekki eftir rusl á drasl á jörðinni, best er að taka það heldur með ykkur í bílinn og henda því svo í næsta ruslagám. Einnig er mikilvæg að skilja náttúruna við sig eins og maður kom að henni. Í ferðalaginu er mikilvægt að reyna að nota bílinn sem minnst, hægt er að fara í gönguferðir eða jafnvel taka reiðhjól með í ferðalagið.

Ef að fara á í gönguferðir er best að hafa í huga að ganga eftir merktum gönguleiðum, annað getur verið slæmt fyrir jarðveginn, þú gætir lent inná einkalóð eða lent í ógöngum eða hættu. Sama á við um bíla. Mikilvægt er að keyra aldrei utanvega, það er  vanvirðing við náttúruna, hjólför geta rist jarðveginn djúpt og eyðilagt gróður.

Ef þú ferðast á suðlægar slóðir leggur Náttúran til að þú hafir eftirfarandi í huga þegar þú kemur á áfangastað:

  • Slökkva skal á ljósi og loftkælingu þegar þú ferð út úr hótelherberginu.
  • Sparaðu vatnið.
  • Þú þarft ekki að láta skipta um rúmföt á hverjum degi.
  • Láttu hótelið vita af óskum þínum í því efni.
  • Ef þú ferðast innan landsins, reyndu að ganga og hjóla sem mest.
  • Víðast hvar er hægt að fá reiðhjól leigð.
  • Einnig getur þú tekið strætó og lestir eru almennt umhverfisvænni en bílar.
  • Nýttu þér hópferðir sem að ferðaskrifstofur bjóða upp á.
  • Flokkaðu úrgang á hótelinu að svo miklu leyti sem það er hægt.
  • Keyptu minjagripi sem eru keyptir á staðnum en ekki kaupa vörur sem er bannað að flytja úr landi eða vörur sem búnar eru til úr dýrum eða jurtum í útrýmingarhættu.
  • Ekki kaupa fílabein, mahoný eða nashyrningahorn.
  • Gistu á litlum gistiheimilum en ekki á stórum alþjóðlegum hótelum.
  • Þannig styður þú við bakið á íbúunum sjálfum.
  • Slepptu því að gista á hóteli með sundlaug, þú getur alltaf farið á ströndina.
  • Farðu eftir þeim umgengnisreglum sem gilda á ströndinni.
  • Um Bláfánaströnd getur verið að ræða.
  • Farðu eftir þeim umgengnisreglum sem gilda á hótelinu.
  • Veldu umhverfismerkt hótel ef hægt er.

details
Náttúran er
12. Juli 2010 11:04
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

PaintHreyfilhitariTiresTiresThe CarThe BicycleVatnsnotkunTiresHeatingElectricityFuelHreinsiefniVerkfæriEiturefniLightingTravellingGeymsla
Beim Anklicken der Gegenstände auf dem Bild erscheinen weitere Informationen

Umhverfisvæn ferðamennska

Umhverfisvæn ferðamennska hefur þróast mikið á undanförnum árum. Ágangur ferðamanna getur verið ákaflega umhverfisspillandi ef ekki er hugsað um hvernig best er tekið tillit til náttúrunnar. Þetta getur átt við hvað sem er því allt sem við gerum hefur einhver áhrif á veröldina í kringum okkur.
Af hverju að fara langt þegar þú getur notið góðs sumarfrís í næsta nágrenni. Alltof margir ferðast um hálfan hnöttinn en gleyma að ferðast um sitt eigið land. Útivera er ein skemmtilegasta leiðin til að halda sér og fjölskyldu sinni heilbrigðri og léttri í lund. Ferðalög þurfa ekki að vara lengi en það getur verið yndisleg upplifun fyrir fjölskylduna að komast aðeins út fyrir borgina eða bæinn og út í náttúruna. Keyrið varlega og njótið þess að skoða út um gluggan það sem fyrir augum ber. Áður en þið leggið af stað er ráðlagt að gera lista yfir hluti sem þarf að taka með, staði sem á að sjá o.fl.

Best er að reyna að takmarka hluti sem þið takið með. Ráðlegt er að notast aðeins við fjölnota umbúðir fyrir matvæli og hluti. Ef að vaska þarf upp eða þvo föt úti í náttúrunni er best að notast við umhverfismerkt þvottaefni og uppþvottalög. Reynið að þvo ekki mikið upp úr ám eða lækjum, oft er hægt er að notast við vaska á tjaldstæðum.

Mikilvægt er að sýna náttúrunni virðingu, í því felst að skilja ekki eftir rusl og drasl á jörðinni, best er að taka það heldur með ykkur í bílinn og henda því svo í næsta ruslagám. Einnig er mikilvæg að skilja náttúruna við sig eins og maður kom að henni. Í ferðalaginu er mikilvægt að reyna að nota bílinn sem minnst, hægt er að fara í gönguferðir eða jafnvel taka reiðhjól með í ferðalagið.

Ef að fara á í gönguferðir er best að hafa í huga að ganga eftir merktum gönguleiðum, annað getur verið slæmt fyrir jarðveginn, þú gætir lent inná einkalóð eða lent í ógöngum eða hættu. Sama á við um bíla. Mikilvægt er að keyra aldrei utanvega, það er vanvirðing við náttúruna, hjólför geta rist jarðveginn djúpt og eyðilagt gróður.

Ef þú ferðast á suðlægar slóðir hafðu eftirfarandi í huga þegar þú kemur á áfangastað:


weiter
Náttúran er
22. Juni 2010 09:07
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Húsaskipti í fríinu

Á vefsíðu Húsakipta er hægt að skrá og fá húsnæði á öllu landinu. Þannig er hægt að ferðast um landið, lána sína íbúð og fá aðra lánaða.

Vefsíða Húsaskipta gerir þér mögulegt að ferðast um Ísland án þess að borga fyrir hótel eða annars konar gistingu. Hugmyndin var lögð inn á Hugmyndatorg Höfuðborgarstofu sl. vor og vakti mikla athygli. Eðli góðra hugmynda er að þær eru svo sjálfsagðar þegar þær koma fram að maður spyr sig af hverju engum hafi dottið þetta í hug fyrr. Eins er með þessa hugmynd sem þegar er búið að koma í verk.

Húsaskipti býður uppá ókeypis íbúða- og sumarhúsaskipti innanlands til lengri eða skemmri tíma. Notendur skrá inn helstu upplýsingar um húsnæði sem þeir bjóða til afnota, húsnæði sem þeir óska eftir, staðsetningu, upplýsingar um fjölskyldustærð og tímabil sem þeir hafa áhuga á íbúðaskiptum.

Tilgangurinn er að notendur geti í framhaldinu haft bein samskipti sín á milli og miðlað nánari upplýsingum.


weiter
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
14. Juni 2010 11:45
Ursprung: Húsaskipti

Bewertung

12345

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: