Gesundheit: Bewegung

The WindowPlantsHooveringBooksBooksElectrical GadgetsElectrical GadgetsThe GlobeThe TelescopeFurnitureSportsThe DeskThe TelephoneThe ComputerThe CountryLightingThe Office
husid_skrifstofan
CursorBeim Anklicken der Gegenstände auf dem Bild erscheinen weitere Informationen

Skrifstofan - Íþróttir

Þrátt fyrir það að stundun íþrótta séu í allflestum tilfellum bæði holl fyrir líkama og sál okkar er ekki þar með sagt að íþróttaiðkun og íþróttaáhugi fólks geti ekki haft gríðarlega neikvæð óbein umhverfisáhrif.
Dæmi um slíkt eru t.a.m. stórir fótboltaleikir þar sem neysla hins almenna fótboltaaðdáenda eru gosdrykkir, bjór og skyndibitamatur af ýmsum tegundum. Þetta eru einkum mikið unnar matar- og drykkjarvörur sem eru mjög orkufrekar í framleiðslu

Tökum dæmi fra úrslitaleik enska bikarsins árið 2004 á árþúsunda-leikvanginum í Cardiff. Hinir 73 þúsund aðdáendur liðanna Manchester United og Millwall sporðrenndu alls 37.624 pylsurúllum, 26.965 samlokum, 17.998 pylsum, 12.780 hamborgurum, 11.502 pokum af kartöfluflögum og 23.909 skömmtum af frönskum.
Þessu var skolað niður með 203.494 lítrum af bjór 21.422 af cider, 12.452 flöskum af víni, 90.481 staupum og 63.141 flöskum af áfengum gosdrykkjum.

Eftir að fagnaðarlátunum í Cardiff lauk lágu á götum Cardiff borgar 37.000 tonn af gleri, 8 tonn af pappa og 11 tonn af matarafgöngum. Ekkert af þessu var endurunnið.

Stærstu umhverfisáhrifin voru þó ferðalögin. Aðdáendurnir ferðuðust að meðaltali 590.5 km hver – 47% með bíl, 34% með lest og afgangurinn með rútum eða stórum fólksbílum.


details

Náttúran er
13. Oktober 2011 12:55
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Gengurðu vel?

Í seinasta pistli mínum hér „Að ganga vel á fjöllum“ fjallaði ég um umgengni okkar um fjöllin og landslagið. Nú er komið að því að við skoðum aðeins hvernig við göngum sjálf.

í allri þeirri vakningu sem á sér stað í dag í gönguferðum okkar úti í náttúrunni, þá er þar einn þáttur sem er vanræktur.
Það er sá þáttur sem víkur að því hvernig við göngum. Hvernig við beitum líkamanum og notum þyngd okkar sjálfra við að koma okkur áfram.
Í ótal fjallaferðum mínum hef ég séð fólk eyða allt of mikilli orku í gönguna. Vissulega er það oft í góðu lagi, þegar fólk er að æfa og byggja upp þol og styrk á styttri leiðum, en þegar löng ganga er framundan, þar sem halda þarf út langan göngudag og eiga svo hugsanlega einhverja orku afgangs ef eitthvað ber út af, eða bara til að koma sér heim, er mikilvægt að beita sér rétt.

Sjálfur hef ég það fyrir vana þegar ég fer með hópa í lengri göngur að kenna fólki rétta göngutækni og líkamsbeitingu. Byrja fyrirlesturinn á því að spyrja hvort það hafi ekki örugglega allir lært að ganga nálægt eins árs afmælinu sínu. Flestir játa því, en þegar ég spyr hvort nokkur hafi fengið „framhaldsnámskeið“ eftir það, verður oftast fátt um svör.

Þess vegna ætla ég að fjalla hér aðeins um það hvernig best er að beita sér á göngu og veita einhverjum ykkar vonandi langþráð framhaldsnámskeið í að ganga.

Of margir hefja gönguna á því að rjúka af stað. Eftir stutta stund fer fólki að hitna og gamalkunnug „brunatilfinning“ kemur í læri og aðra vöðva sem við beitum helst á göngunni. Þetta er gott dæmi um það þegar vitlaust er farið af stað og ávísun á mikla þreytu og jafnvel að þreytan nái yfirhöndinni áður en markmiði ferðarinnar er náð og göngumaðurinn snýr við löngu áður en ætlað var.
Auðvitað viljum við komast hjá þessu og helst að koma aftur til baka, full af orku og þægilega þreytt.

Þegar við ætlum okkur í gönguferð skulum við byrja á því að huga að klæðnaðinum. Stundum er svalt úti og jafnvel kalt. Við komum út úr heitum bílnum og ákveðum að klæða okkur m.v. þá tilfinningu. Svo er gengið af stað og eftir stutta stund fer okkur að hitna vel og þá kemur upp þörfin að fækka fötum, en þá erum við kannski þá þegar orðin sveitt og þvöl og því er erfitt að finna rétta hitann á okkur eftir það. Sjálfur hef ég það fyrir vana að vera alltaf „smá kalt“ þegar ég byrja að ganga. Þá veit ég líka að eftir smá stund þegar líkaminn fer að hitna að þá verð ég líka hóflega heitur og þarf því ekki að fækka fötum. Höfum því í huga að klæða okkur ekki of mikið í upphafi göngu, en ef okkur hlýnar ekki fljótlega, þá er kannski tímabært að bæta á sig fleiri fötum. Við það að svitna of mikið missum við mikla orku sem við auðvitað viljum eiga þar til átökin aukast.   Munið því, að ykkur á að vera „örlítið kalt“ þegar gangan hefst.

Þá er það gangan sjálf. Mín einfalda regla segir „Þú ferð hraðar ef þú ferð hægt“.  Nú hvá eflaust einhverjir og því ætla ég að skýra þetta betur.
Þegar við göngum, skulum við ganga fremur hægt og hafa skrefin stutt og umfram allt, ekki fara of hratt af stað. Skrefin eiga að vera það stutt að við erum aldrei að tegja á okkur í skrefunum, því þegar við teygjum á vöðvunum, er stutt í að mjólkursýran fari af stað og þá er líka stutt í að við þreytumst. Oft krefst það nokkurar einbeitingar og vilja að halda þessum rólega hraða. En ég lofa ykkur því að ef þið venjið ykkur á að ganga rólega, þá sjáið þið líka fljótt að þessi hæga yfirferð skilar ykkur hraðar, því sjaldnar þarf að hvíla sig og einnig helst líkamshitinnn stöðugri og við mæðumst mun minna.

En þá er það hvernig við beitum okkur á göngunni. Vonandi tekst mér að lýsa því hér á einfaldan hátt.  Í stuttu máli sagt, þá eigum við ekki að„draga okkur upp“ í skrefunum, heldur eigum við að “stíga upp“. Of margir eru að taka löng skref og stíga þá langt fram fyrir sig og nota því nánast alla vöðva í lærunum þegar þeir draga sig upp. Best er að bera sig þannig að, að við færum líkamsþungann fram. Það gerum við með því að halla okkur aðeins fram á við og í hverju skrefi færum við þann fót sem við stígum í, sem næst í lóðrétta línu undir þyngdarpunkt  líkamans. Síðan stígum við upp í þann fót og því felst áreynslan að mestu í því að rétta úr fætinum og þá erum við aðeins að nota vöðvana aftan í lærunum.

Eflaust tekur það ykkur einhvern smá tíma að tileinka ykkur þessa göngutækni (allavega átti það við um mig) en ég lofa ykkur því að þið munið eiga auðveldari ferðir framundan.
Stundum þarf jafnvel að beita smá „aga“ á göngufélagana þegar maður vill ganga rólega.
Fyrir tveim árum var ég á leiðinni á Hvannadalshnúk með hóp björgunarsveitarfólks. Spennann var mikil, en ég vildi halda þessum skynsamlega gönguhraða. Þegar við vorum komin nokkuð áleiðis, sáum við aðra hópa draga á okkur. Þetta kom af stað stressi í mínu fólki sem vildi auka hraðann. Ég stóð á mínu og hélt þessum yfirvegaða hraða og innan skamms ruku nokkrir hópar fram úr okkur við mikla óánægju míns fólks. En viti menn, þegar komið var upp í um 1600 m. hæð fórum við fram úr öllum þessum hópum, sem voru þar örþreyttir og orkulitlir. Svo fór að við vorum fyrsti hópur á tindinn þennan dag og einhverir þessara hópa sem fóru fram úr okkur neðarlega á leiðinni náðu ekki að komast á tindinn sökum þreytu.

Göngum því hægt og spörum orkuna. Þannig förum við miklu hraðar yfir auk þess sem ferðirnar verðu mun ánægjulegri.

Ljósmynd: Sól fagnað á Búrfelli, ©Árni Tryggvason.


details

Árni Tryggvason
24. Mai 2011 19:33
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Gönguferðir

Að ganga er ein besta og ódýrasta líkamsrækt sem völ er á. Hún er ekki bundin við sérstakan stað né tíma svo þú ert alveg frjáls í að þjálfa þig þegar þú vilt. Hún er líka tilvalin til að fá sér ferskt loft. Ganga styrkir líkamann og getur spornað við ýmsum æðasjúkdómum og bætt andlega líðan. Með góða skó á fótum ertu tilbúin í gönguferðina. Gönguleiðum og stígum í kringum bæi og borgir hefur fjölgað til muna á síðustu árum, athugaðu gönguleiðir í þínu nágrenni.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Náttúran
19. April 2010 00:33
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Sundlaugar Reykjavíkur heilnæmar og öruggar

Sundlaugar í Reykjavík eru bæði heilnæmar og öruggar. Þetta kemur fram í niðurstöðum reglubundins eftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur með sundlaugum árið 2008, sem nýlega voru kynntar á fundi Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur.

19 stundstaðir eru í Reykjavík, 7 sem reknir eru á vegum ÍTR, 6 skólasundlaugar og 6 aðrar. Á hverjum stað er ein til tvær sundlaugar og oft margar setlaugar. Árið 2008 var auk reglubundins eftirlits, gerð könnun á heilnæmi vatns og öryggismálum í samstarfi við Umhverfisstofnun og önnur heilbrigðiseftirlitssvæði. Þar var leitað svara við ýmsum spurningum um heilnæmi vatnsins, innra eftirlit, þjálfun starfsfólks og skyndihjálparbúnað á staðnum. Þá voru tekin sýni úr öllum laugum. Sýrustig vatns, klórstyrkur og bundinn klór var mældur á staðnum og tekið var vatnssýni fyrir heildargerlafjölda úr öllum laugum. Einnig var leitað í nokkrum lauganna að bakteríunni Pseudomonas Aeurginosa sem getur valdið sýkingum í húð.

Niðurstaðan er að heilnæmi sundlaugavatns í Reykjavík var í ágætu lagi. Öll mæld klórgildi voru innan marka. Hvergi mældist bundinn klór nálægt 0,5 mg/l. Heildargerlafjöldi var innan marka baðvatnsreglugerðar í 95% vatnssýna og pseudomonas bakterían fannst ekki í neinni laug í Reykjavík í þessari könnun. Þá virðast öryggismál vera í góðu lagi og helstu björgunartæki eru alls staðar fyrir hendi.

„Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna,“ segir Ingibjörg H. Elíasdóttir heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík. „Það sem helst má bæta eru varnaðarmerkingar um hættu sem stafað geta af dýfingum,“ segir hún. Laugarverðir eiga að endurnýja hæfnispróf sitt árlega og aðrir starfsmenn sundlauga sem þjóna gestum fara á skyndihjálparnámskeið annað hvert ár. Á einum sundstað átti laugarvörður eftir að endurnýja árlegt hæfnispróf sitt.

Umhverfisstofnun birtir á næstunni skýrslu með niðurstöðum könnunarinnar á landsvísu um gæði laugarvatns og öryggi á stundstöðum.

details

Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur
12. Mai 2009 16:12
Ursprung: Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur

Bewertung

Íslenski fjallahjólaklúbburinn vex og vex

Eftir sólríkt og skemmtilegt hjólasumar er komið að lokaferð þriðjudagsferða Íslenska fjallahjólaklúbbsins. Frá því um miðjan maí hafa vaskir reiðhjólaunnendur safnast saman við Mjóddina kl. 20:00 á þriðjudagskvöldum og hjólað saman um borgina. Ferðirnar hafa teygt sig víða; fuglaskoðun í Grafarvoginum, Gróttuviti heimsóttur, kaffihúsaferð á Hressó, hjólað í kringum Rauðavatn, Heiðmerkurhringur, Elliðavatn, í Hafnafjörð og víðar.

Frá fyrstu ferð vorsins var ljóst að hjólamönnum fjölgar ört í borginni. Hópurinn hefur að meðaltali verið 40 - 60% stærri í ferðum sumarsins en á undanförnum árum. Samhliða ferðunum hafa þátttakendur safnað ferðum og í lokaferðinni verður einmitt afhentur mætingabikar sumarsins. Annars vegar farandbikar og hins vegar annar minni til eignar. Þess má geta að ein manneskja hefur eignast farandbikarinn fyrir að vera með bestu mætinguna í þriðjudagskvöldferðirnar í 3 ár; það var hin knáa Sóley Bjarnadóttir sem það gerði fyrir tveimur árum, þá 12 ára gömul.

Ferðin á þriðjudaginn hefst við Mjóddina, þar sem strætó stoppar, kl. 20 og hjólað verður þaðan sem leið liggur í GÁP í Mörkinni. Þar verður lokahátíð þriðjudagsferðanna, verðlaunaafhending og léttar veitingar.
Ferðin er opin öllum hjólamönnum og ætti að vera lokið fyrir kl. 22.

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Helgason í s. 8494245 eða Sesselja Traustadóttir í s. 864 2776


details

Íslenski fjallahjólaklúbburinn
22. August 2008 18:45
Ursprung: Íslenski fjallahjólaklúbburinn

Bewertung

12

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep   okt   nov   dez  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Sóríasis
TAkk
:D 17. 01. 2012 20:21:
Iðnaðarsalt í matvælum
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: