Die Gesellschaft: Innovationen

Matarklasar á Íslandi

Klasar eru samstarfsform, einskonar „samstarf í samkeppni“ * sem hefur þann tilgang að styðja við uppbyggingu og samstarf milli aðila (fyritækja, stofnana og sveitarfélaga) til framgangs ákveðinna málefna s.s. matvælaframleiðslu, menningartengdrar ferðaþjónustu o.fl. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur að tilstðuðlan opinberra aðila haft umsjón með því að kynna klasaformið í samvinnu við atvinnuþróunarfélögin og fjöldi klasa hafa verið stofnaðir um allt land. Á meðal þeirra matarklasar.

Matarklasarnir eru orðnir átta, þar af eru sjö klasar ** komnir vel af stað. Hér á Grænum síðum og korti getur þú kynnt þér hverjir starfa undir hvaða klasa með því að slá inn nafn fyrirtæksins eða starfseminnar hér í leitarreitina á Grænum síðum, eða þú skoðar alla klasa undir Vottanir/Viðmið:Klasar eða þú leitar undir þeim vörum sem þú hefur áhuga á undir Vörur:Heimavinnsla en þar eru aðilar flokkaðir eftir vöruframleiðslu sé það eðli starfsemi þeirra. Undir  Vörur:Heimavinnsla sérð þú einnig önnur verkefni s.s. Beint frá býli og einstaka frambjóðendur heimavinnsluafurða flokkaða eftir framboðsvörum sínum.

Með því að smella á aðilana getur þú bæði séð þá á korti og hvaða flokka aðra þeir falla undir og þannig aftur þrætt leiðina til annarra tengdra aðila og málefna. Tilgangurinn með þessum ítarlegu rannsóknum og skráningum á framboðinu í landinu er að gefa yfirsýn á fjölbreytnina og gróskuna sem nú þegar er staðreynd um allt land, og hjálpa til við að efla hana enn frekar.

*Sjá rit Impru „Samstarf í samkeppni“.

**Matarklasi Suðurlands, Veisla að vestan, Austfirskar krásir, Ríki Vatnajökuls, Matur úr Eyjafirði,Þingeyska matarbúrið og Matarkistan Skagafjörður. Matarklasi Vesturlands hefur verið stofnaður en er ekki komin það langt af stað að hægt sé að skrá aðila.


weiter
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. Juli 2010 19:03
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Betristofur hér og þar um borgina

Betristofa - borðstofa í geislum sólar„Betristofa borgarinnar“ er verkefni sem hlaut styrk frá styrktarsjóð Reykjavíkurborgar, Vertu með í að skapa betri borg. Miðbærinn, betristofa borgarinnar, er ekki einungis fallegt svæði sem virða má fyrir sér heldur á hún að notast sem íverurými. Með inngripum hópsins ætlum við að glæða minna notuð svæði miðbæjarins lífi, staðirnir munu fá nýjan og aukinn tilgang og áhugaverðum innsetningum komið fyrir. Smám saman færist hlutverk miðbæjarins frá því að vera virðuleg stássstofa þar sem allt er ósnertanlegt til þess að vera lifandi svæði þar sem ungir sem aldnir geta lifað og leikið sér.

Allir velkomnir í Betristofu borgarinnar. Það sýnir sig og sannar þegar hún verður til í bókstaflegri merkingu undir berum himni þar sem fólk getur sest, spjallað og notið veðurblíðunnar. Það má meira að segja setja fæturna upp á borð og hoppa í sófanum.

Meira á http://www.wix.com/betristofan/rvk/ og/eða á Facebook síðunni þeirra.


details
Betristofan
11. Juli 2010 11:29
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Matarklasi Suðurlands - hefðir úr héraði

Matarklasi Suðurlands og Vestmannaeyja hefur það að markmiði að varðveita og hefja til vegs og virðingar hefðir úr héraði í matargerð í anda hinna alþjóðlegu „Slow Food/Hægrar matarmenningar“ samtaka. Með því að nýta hráefni úr næsta nágrenni okkar svo sem unnt er styrkjum við matvælaframleiðslu og aukum fæðuöryggi þjóðarinnar. Það styttir auk þess flutningsleiðir, minnkar mengun og sparar flutningskostnað.

Sjá aðila í Matarklasa Suðurlands hér á Grænum síðum í yfirflokknum Vottanir og viðmið undir flokknum „Matarklasi“ og í yfirflokknum Vörur í flokknum „Heimavinnsla“ en þar er eru allir matarklasar og matarverkefni flokkuð undir þeim vörum sem þeir bjóða upp á. Á Græna kortinu ásamt öðrum matarklösum og beinsöluaðilum á öllu landinu í nokkrum flokkum. T.d. í flokkunum „Heimavinnsla og Nýsköpun í heimabyggð“.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
6. Juli 2010 13:32
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Austfirskar Krásir - Matur úr héraði

Austfirskar Krásir - Matur úr héraði er gæðamerki á matvælum úr austfirsku hráefni, afurðir sem byggja á sérstöðu, handverki og hefðum á Austurlandi. Austfirskar Krásir matreiða og framreiða hráefni af hjartans list undir kjörorðunum Upplifun - Vitund - Sérstaða.

Tilgangur samtakanna Austfirskar Krásir - Matur úr héraði er að efla austfirska matarmenningu og vera samstarfsvettvangur þeirra aðila sem stunda rekstur með hráefni svæðisins.

Sjá aðila í Austfirskum krásum hér á Grænum síðum í yfirflokknum Vottanir og viðmið undir flokknum „Austfirskar krásir“ og í yfirflokknum Vörur í flokknum „Heimavinnsla“ en þar er eru allir matarklasar og matarverkefni flokkuð undir þeim vörum sem þeir bjóða upp á. Á Græna kortinu ásamt öðrum matarklösum og beinsöluaðilum á öllu landinu í nokkrum flokkum. T.d. í flokkunum „Heimavinnsla og Nýsköpun í heimabyggð“.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. Juli 2010 10:49
Ursprung: Samtökin Austfirskar krásir - matur úr héraði

Bewertung

Tímamót í íslenskri orkusögu

Rafmagn var í fyrsta skipti á Íslandi framleitt úr gróðurhúsagasi föstudaginn 22. janúar á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og var rafmagnið notað til að knýja ljósaperur og fartölvu.

Í vetur hafa tveir nemendur í meistaranámi við RES skólann á Akureyri unnið að verkefni á Nýsköpunarmiðstöð undir leiðsögn prófessors Þorsteins I. Sigfússonar eðlisfræðings og forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar. Verkefnið er unnið í náinni samvinnu við sprotafyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) sem notast við vetni og koltvísýring við framleiðslu sína á metanóli á vökvaformi. Í verkefninu var reynt að knýja efnarafala til þess að framleiða rafmagn úr metanólinu.

Metanólið er framleitt hér heima með því að nota vetni úr endurnýjanlegri raforku og tengja það við C02, sem má fá úr jarðhitaborholum eða losun stóriðjunnar. Úr verður grænt metanól sem hægt er að nota á bíla og önnur farartæki og gæti sparað samgöngukerfi eða fiskveiðar mikla orku. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að innlend framleiðsla á metanóli sé góður kostur sem getur komið í stað innflutts metanóls og annars eldsneytis og sparað þar með mikinn gjaldeyri.

Mynd frá NMÍ: Meistaranemarnir Lapinski og Kluska ásamt starfsmönnum CRI og Nýsköpunarmiðstöðvar.


details
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
28. Januar 2010 19:09
Ursprung: Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Bewertung

123426293031

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: