Nahrung: Ökotrophologie
Heilsutengd matvæli og markfæði - vöruþróun, framleiðsla, rannsóknir og markaðssetning
Matvæladagur MNÍ árið 2011 verður haldinn þann 18. október nk á Hilton Reykjavík Nordica Hóteli.
Yfirskrift Matvæladagsins að þessu sinni er Heilsutengd matvæli og markfæði, Íslensk vöruþróun, þar sem fjallað verður meðal annars um íslenska vöruþróun, framleiðslu, rannsóknir og markaðssetningu.:
Dagskrá
10:30 – 12:00 Uppsetning veggspjalda & kynningarbása
11:15 – 12:00 Afhending ráðstefnugagna
12:00 – 12:30 Ávarp formanns MNÍ - Herdís Maríanne Guðjónsdóttir, Formaður MNÍ. - Setning & kynning á efni dagsins
Ávarp iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, Iðnaðarráðherra.
Afhending Fjöreggsins, Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins.
Vöruþróun
12:30 - 12:50 Ævintýramarkaðssetning; ull – fiskur - fæðubótarefni - Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri SagaMedica.
12:50 – 13:05 Byggi, íslenskt morgunkorn - frá akri til morgunverðar - Arnar Snær Rafnsson, gæðastjóri, Árla. Friðrik Arelíusson, framkvæmdastjóri, Árla.
13:05 – 13:25 Brauðbakstur úr íslensku hráefni, Iðunn Geirsdóttir, matvælafræðingur, Myllan. Ólafur Eggertsson, bóndi, Þorvaldseyri.
13:25 – 13:40 Íslensk sköpun – lífræn hollusta - Eymundur Magnússon, búfræðingur, Móðir Jörð, Vallanesi. Eygló Björk Ólafsdóttir, viðskiptafræðingur, Móðir Jörð, Vallanesi.
13:40 – 13:55 Hleðsla, íslenskur próteindrykkur - Kristín Halldórsdóttir, gæðastjóri, Mjólkursamsalan Akureyri.
13:55 – 14:10 Hámark, íslenskur próteindrykkur - Pétur Helgason, matvælafræðingur, Vífilfell
14:10 – 14:15 Kynning: Norræna Næringarfræðiráðstefnan 2012 - Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir, Matvæla- og næringarfræðingur verkefnastjóri Rannsóknarstofu í næringarfræði.
14:15 – 14:40 Kaffihlé Veggspjalda- og vörukynningar
14:40 – 15:05 Fagur fiskur í sjó, umfjöllun um þættina & áhrif þeirra - Sveinn Kjartansson, matreiðslumaður, Fylgifiskar. Gunnþórunn Einarsdóttir, sérfræðingur, nýsköpun & neytendur, Matís.
15:05 – 15:20 Fisksósur, lítið nýtt lúxus hráefni - Ómar Bogason, verkefnisstjóri, Brimberg. Arnljótur Bjarki Bergsson, sviðsstjóri, Matís
15:20 – 15:35 Þörungar, þang & heilsa - Rósa Jónsdóttir, fagstjóri á líftækni og lífefnasviði Matís. Þóra Valsdóttir, verkefnastjóri á nýsköpunar og neytendasviði Matís. Hörður G. Kristinsson, rannsóknarstjóri, Matís.
15:35 – 15:50 Lýsi; aldagömul lífsnauðsyn - Árni Geir Jónsson, sölustjóri, Lýsi Hf. Adolf Ólason, markaðsstjóri, Lýsi Hf.
15:50 – 16:05 Prófitt, íslensk lína fæðubótarefna - Björn Jónsson, framkvæmdastjóri, Katla.
16:05 – 16:20 Samantekt, fyrri hluti - Sveinn Margeirsson, fundarstjóri.
16:20 – 16:25 Kynning: eHap, Heilsuvitund og Framgangur verkefnis & næstu skref - HeleGray, næringarrekstrarfræðingur, forstöðum. starfsmenntad. Iðunnar.
16:25 – 16:50 Kaffihlé - Veggspjalda- og vörukynningar.
Rannsóknir og fræðsla
16:50 – 17:10 Merkingar á umbúðum matvæla Zulema Sullca Porta, sérfræðingur, MAST. Næringar- & heilsufullyrðingar.
17:10 – 17:25 Þarf að D-vítamínbæta íslensk matvæli? - Laufey Steingrímsdóttir, Prófessor í næringarfræði, HÍ.
17:25 – 17:40 D-vítamín, ráðlagðar skammtastærðir - Guðbjörg Kristín Ludvigsdóttir, læknir, Landspítali.
17:40 – 18:00 Samantekt, seinni hluti, umræður & ráðstefnuslit - Sveinn Margeirsson, fundarstjóri.
Fundarstjóri: Sveinn Margeirsson, Ph.D. forstjóri Matís
Þátttökugjald: Fyrir 14. október, 4.500 kr, eftir það og á staðnum 5.500 kr. 3.000 kr fyrir nemendur.
Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir, 898 8798 frida@isport.is.
details
Matís
17. Oktober 2011 12:08
Ursprung: Matvæla- og næringafræðifélag Íslands
Bewertung
Orka í matvælum
Helstu orkuefni í fæðu eru fita, alkóhól, prótein og kolvetni (í minnkandi röð eftir orkugildi). Algengasta gildi fyrir orku er kílókaloría (1000 kaloríur) sem samsvarar einni hitaeiningu. Fita gefur okkur 9 hitaeiningar (he) í hverju grammi, alkóhól 7 he og kolvetni og prótein 4 he hvort í einu grammi. Orkuþörf fólks er misjöfn og háð þáttum eins og aldri, kyni og hreyfingu. Það segir sig sjálft að lélegt mataræði og langvarandi inntaka á meiri orku en þörf er fyrir leiðir til þyngdaraukningar og annarra fylgikvilla svo sem ótímabærrar hrörnunar, slitsjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma og sykursýki svo eitthvað sé nefnt.
details
Ástríður Sigurðardóttir
7. September 2011 23:25
Ursprung:
Bewertung
Regnbogafæða

Á morgnana má finna ýmislegt rautt eins og tómatsafa, ber og berjamauk á brauð eða rauð epli. Það er allavega gott að taka eftir einhverju rauðu í morgunmatnum og beina huganum að rótarstöðinni og ýta við henni með huganum. Gera það sama við hinar orkustöðvarnar yfir daginn. Það leiðir líka athygli okkar að líkamanum og þá er líklegra að við tökum eftir hverjar þarfir hans eru og í því felst oft mikil lækning.
Um hádegisbilið má athuga gular matartegundir eins og gulrót, eða rófusneið, banana, greipaldin, ananassafa, perur, heilhveitibrauð, korn, gulan ost eða egg. Grænt fellur að kaffitíma eða kvöldmat eftir því hve snemma við tökum daginn. Þar kemur til greina grænt te, græn vínber, kíví eða avókadó, vænt salat og spírur eða gúrka á samlokuna.
Svo væri hægt að hafa kvöldmatinn grænan og þá er um ótalmargt að velja. Grænt tengist hjartanu og ef við höfum byrjað daginn með því að styrkja eigin orku er kominn tími til að vera hlýlegur við aðra.
Seinni part dagsins kemur blátt og blágrænt inn í skalann og við eigum fátt fæðukyns þar nema berjasaft, plómur, bláberjamúffur eða blágresiste. Það má íhuga litina þegar drukkið er te yfir daginn. Þótt blöð jurta séu græn eru blómin í mismunandi litum. Eins má setja vatn á litaðar flöskur, bláar eða grænar, stilla þeim út í glugga og drekka vatnið, sem hefur þá dregið til sín litatíðni glersins úr sólarljósinu.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Hildur Hákonardóttir
26. Juli 2011 11:09
Ursprung: Hildur Hákonardóttir
Bewertung
Vítamín
Vítamín eru lífræn efni sem eru okkur lífsnauðsynleg til vaxtar og viðhalds. Þau eru flokkuð í tvo flokka; vatnsleysanleg vítamín (B- og C) og fituleysanleg vítamín (A, D, E og K).
B-vítamínin eru 8 talsins og yfirleitt talað um vítamínin séu 13 samtals. Settir hafa verið ráðlagðir dagsskammtar (RDS) fyrir neyslu vítamína og með fjölbreyttu og hollu fæði má fullnægja þörf fyrir vítamínin og koma í veg fyrir skortseinkenni af þeirra völdum. Vatnsleysanleg vítamín umfram þörf skolast úr líkamanum með þvagi en þess þarf að gæta að inntaka á fituleysanlegum vítamínum sé innan ráðlegra marka því þau geta haft eituráhrif í of stórum skömmtum og safnast fyrir í vefjum líkamans.
details
Ástríður Sigurðardóttir
4. Februar 2011 15:25
Ursprung:
Bewertung
Mataræði mannsins, það sem hefur ávallt virkað
Haraldur Magnússon Osteópati mun flytja nýja fyrirlestur í fræðslusal Maður Lifandi, Borgartúni 24, þriðjudaginn 11. janúar kl. 17:30-19:30
Flest okkar vilja vita hvað telst hollt og hvað sé óhollt, en við fáum mjög misvísandi skilaboð um það. Hvernig eigum við þá að lifa heilsusamlegu líferni?
Það er engin launung að það er almenn vitneskja að heilsu okkar hér í vestrænu löndununum fer hratt versnandi og engin lausn virðist vera í sjónmáli þrátt fyrir tækninýjungar og ríkari þekkingu en nokkurn tíman áður.
En erum við að leita á vitlausum stöðum? Liggur lausnin í því að finna sífellt upp ný mataræði? Hvernig var mataræði fyrir 1900 áður en tíðni hrörnunarsjúkdóma fór að aukast? Skoðað verður frumstæð mataræði samfélaga víðsvegar um heim, hverjar voru aðstæður þeirra og voru þau heilbrigð. Þrátt fyrir að þessi samfélög hafi lifað á ólíku mataræði voru ákveðnir grundvallarþættir sameiginlegir með þeim flestum. Í lok fyrirlestarins verður farið yfir þessi grundvallaratriði heilbrigðs mataræðis auk þess sem litið verður á nokkur vinsæl mataræði eins og candida matæræði, Atkins og Southbeach mataræði, pH mataræði og steinaldarmataræði með það í huga hvað má læra af þeim.
Aðgangseyrir er 1990 kr.
details
Maður lifandi
4. Januar 2011 18:22
Ursprung: Lifandi markaður
Bewertung

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Ereigniskalender

Neue Kommentare:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:
+ Fleiri ummæli















