Kalender: Ereigniskalender

Höfuðdagur

Hann er 29. ágúst til minnngar um það, er Heródes konungur Antipas lét hálshöggva óíhannes skírari að beiðni Salóme. Orðið sést ekki í ritum fyrr en seint á 15. öld, enda enginn hægðarleikur að finna þjált orð fyrir hið latneska heiti decollatio, sem nánast þýðir afhöfðun.Um höfuðdaginn er í rauninni er ekkert sérstakt að segja annað en hina alkunnu veðurtrú. Fjöllmargir dagar voru taldir marktækir til veðurspádóma, en enginn þó jafnalmennt og höfuðdagur. Í stuttu máli var vonað eða óttast, að með honum skipti um veður til góðs eða ills og það veður skyldi haldast til rétta  eða um það bil næstu þrjár vikur. Þótt fásinna sé auðvitað að tengja veðurbreytingar við ákveðinn mánaðardag, er um þetta leyti ársins ekki fráleitt að búast við slíku af veðurfræðilegum sökum.Um þessar myndir fer sólin að ganga undir á norðurpólnum. Þá eykst hitamunur milli kuldabeltis og hitabeltis og veldur sterkum vestanvindum ofarlega í gufuhvoldinu. Af þessu verður oft talsverð breyting á gangi, dýpt og kreppu lægða á jörðu niðri, og getur það ástand haldist um nokkurt skeið. Reynsluvísindi kynslóðanna eru ekki ætíð með öllu út í hött.


details
Árni Björnsson
29. August 2010 00:48
Ursprung:

Bewertung

Tvímánuður byrjar

Tvímánuður er 5. mánuður sumars eftir gömlu tímatali. Hann hefst með þriðjudeginum í 18. viku sumars eða hinni 19., ef sumarauki er, þ.e. 22. – 28. ágúst. Í Snorra Eddu heitir hann kornskurðarmánuður.


details
Árni Björnsson
24. August 2010 00:00
Ursprung:

Bewertung

40 ár frá sprengingu Miðkvíslarstíflu

40 ár verða liðin frá sprengingu Miðkvíslarstíflu þ. 25. ágúst næstkomandi. Tímamótanna verður minnst og þeir heiðraðir sem þarna stóðu að verki á samkomu sem haldin verður þ. 25. ágúst n.k. og hefst kl. 18:00 í Helgey við Miðkvísl. Þar verður stutt fremur hátíðleg athöfn, kórsöngur, ávarp sprengjumanns og afhjúpaður minnisvarði um stíflurofið. Áætlað er að athöfnin taki um hálfa klukkustund og síðan er boðið til kaffisamsætis að sveitasið í Skjólbrekku þar sem ungir og gamlir hittast, rifja atburðinn upp og gleðjast saman. Gestum er velkomið að ávarpa samkomuna. Á þessa hátíðar- og baráttusamkomu eru allir velkomnir sem hafa áhuga á náttúruvernd og láta sig verndun Mývatns og Laxár varða.

Ljósmynd: Miðkvíslarrústir. Mynd fengin að láni á unsteinn.blogcentral.is.


details
Hjördís Finnbogadóttir
15. August 2010 23:01
Ursprung:

Bewertung

Uppskriftakeppni Viðeyjar

Uppskriftakeppni Viðeyjar er nú haldin í annað sinn og  ættu allir sem eru  áhugasamir um nýtingu landsins gæða og finnst gaman að búa til góðgæti úr íslenskri flóru að taka þátt.

Keppnin er einföld og allir geta tekið þátt. Eina skilyrði til þátttöku er að í uppskriftinni sé að minnsta kosti eitthvað eitt sem vex í Viðey, - rabbarbari, kúmen, hvönn, netla, blóðberg, maríustakkur eða hvaðeina annað sem vex í eynni.
Skráning í keppnina hófst sunnudaginn 20. júní og stendur hún enn yfir. Hægt er að skrá sig með því að senda nafn sitt á: videy@reykjavik.is.  

Þátttakendur mæta svo með sitt framlag til keppninnar ásamt uppskriftinni á Töðugjöld í Viðey fyrir kl. 13:30 þann 29.ágúst. Þar mun dómnefnd skera úr um hvert þykir vera besta Viðeyjarhnossgætið. Glæsileg verðlaun ery í boði.
Dómnefndina skipa þau Friðgeir Ingi Eiríksson yfirmatreiðslumaður á Gallery Holt, Sólveig Baldursdóttir ritstjóri Gestgjafans og Nanna Rögnvaldsdóttir ritstjóri og matreiðslubókahöfundur.

Myndin er af hinum þremur úrslitaréttum í uppskriftakeppninni i fyrra. Kúmenpönnukökurnar urðu hlutskarpastar. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.


details
Berglind Ólafsdóttir
13. August 2010 14:44
Ursprung: Viðeyjarsafn

Bewertung

Frídagur verslunarmanna

TjaldútilegaHann er nú jafnan haldinn fyrsta mánudag í ágúst. Verslunarmenn í Reykjavík fengu sinn fyrsta almenna frídag 13. september 1894. Gekkst Verslunarmannafélag Reykjavíkur þá fyrir hátíð að Ártúni við Elliðarár. Næstu tvö ár var hann ekki haldinn á ákveðnum degi, en þó í ágústmánuði. Árið 1897 var ákveðið, að hann skyldi vera á föstum mánaðardegi, gamla þjóðhátíðardaginn frá 1874, 2. ágúst. Hélst sú skipan fram yfir 1930, að núgildandi regla komst á.

Samkomustaðurinn var í fyrstu við Ártún sem í upphafi, en síðar var tekið að fara í skemmtierðir í nágrenni Reykjavíkur. Árið 1935 var byrjað að halda samkomur á Þingvöllum og hélst það fram að síðari heimstyrjöld. Eftir það varð hann smám saman almennur frídagur alls vinnandi fólks.

Hér á græna kortinu sérð þú tjaldstæði á Íslandi. Skilgreining: „Svæði ætlað til gistingar í tjöldum og þessháttar búnaði. Ætlast er til að farið sé að gát um náttúruna og umhverfis svæðin.“

Aðeins stjörnumerkt tjaldstæði skv. gæðakerfi tjalda.is eru merkt inn á græna kortið.

Mynd: Í útlegu. Ljósmynd: Ósk Vilhjálmsdóttir


details
Árni Björnsson
2. August 2010 00:52
Ursprung:

Bewertung

12342651565758

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: