Die Gesellschaft: Kontakt
Fréttafóðrun Náttúrunnar
Við minnum á fréttafóðrun Náttúrununnar. Til að notfæra sér hana þarft þú aðeins að setja slóðina hér að neðan í þar til gerðan RSS lesara á tölvunni eða í gsm-símanum þínum. Öllum er velkomið að virkja þannig fréttir Náttúrunnar á vefsíðum sínum. http://www.natturan.is/feeds/
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
25. Mai 2010 08:16
Ursprung: Náttúran.is
Bewertung
Boðað til grænnar samdrykkju í annað sinn
Green Drinks eða „Grænir drykkir“ er alþjóðleg óformlegt samfélag sem starfar óhefðbundið í 466 borgum um allan heim. Grænir drykkir hafa það að markmiði að fólk með áhuga á umhverfismálum hittist og efli með sér tengsl til að vinna að grænum og góðum málefnum. Jafnt áhugafólks sem fagaðilar eru velkomnir í hópinn. Margir hafa myndað tengls og jafnvel fundið sér starfsvettvang innan umhverfistengdra fyrirtækja, samtaka með þátttöku á samdrykkju með grændrykkjufélögum um allan heim.
Fyrsti hittingur Grænna drykkja hér á landi var haldin í lokaveislu Grænna daga GAIA í Norræna húsinu þ. 6. mars sl. en nú er aftur boðið til samkundu á grænum drykkjarnótum þ. 1. apríl kl 17:30 í Norræna húsinu. Hægt er að hafa samband við Charlotte charlotte.o.ferrier@gmail.com eða í síma 8570945 til að fá nánari upplýsingar.
Fjöldi skemmtilegra merkja og myndefnis hefur verið unnið til að vekja athygli á Grænum drykkjum um allan heim. Mynd: Green Drinks Chattanooga.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
31. März 2009 13:33
Ursprung: Náttúran.is
Bewertung
Samlagið - fyrir okkur hin
Nýlega opnaði eitt af jákvæðu afsprengjum kreppunnar en það er vefurinn samlagid.is. Þar er hægt að gefa og fá gefins jafnframt því að kaupa og selja ódýrt. Skráning kostar ekkert og er framtakið því samfélagsleg þjónusta sem getur skipt sköpum fyrir fólk í dag enda ófáir búnir að missa vinnuna, húsið, bílinn og berjast við að halda krökkunum og eiga í sig og á frá degi til dags.
Um tilurð vefsins segir stofnandinn Axel V. Gunnlaugsson:
Á dimmum laugardagsmorgni í nóvember 2008 vaknaði hugmynd um að setja upp vef sem kannski gæti liðkað til í kreppunni. Hugmyndin er að stórum hluta gömul og fólst í því að setja upp smáauglýsingavef en þó með öðru sniði en allir hinir. Á Samlaginu er áherslan lögð á skiptimarkaðs formið þar sem peningar þurfa ekki endilega að vera forsenda viðskipta.
Efnahagsástandið hefur tímabundið takmarkað það fé sem við höfum á milli handanna. Engu að síður liggjum við sum etv. með eigulega hluti sem við viljum koma í verð eða nýta í skiptum fyrir eitthvað sem okkur vantar. Einhverjir kunna jafnvel að vilja skipta á vinnuframlagi og vörum eða matvælum ýmiskonar.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
7. März 2009 12:31
Ursprung: Náttúran.is / Samlagið - samlagid.is
Bewertung
Fundur umhverfisráðherra með félagasamtökum
Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra sat sinn fyrsta samráðsfund með félagasamtökum á sviði umhverfismála í Þjóðmenningarhúsinu á þriðjudag.
Á fundinum sagði umhverfisráðherra að í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu yrðu efnahagsmál í forgangi hjá ríkisstjórninni. Engu að síður ætlaði hún að beita sér fyrir ákveðnum málum á verksviði síns ráðuneytis sem hún telur að hægt sé að koma á rekspöl á þeim stutta tíma sem er fram að kosningum. Þar á meðal hefur ríkisstjórnin samþykkt tillögu hennar um að Árósasamningurinn verði fullgiltur og nú er hafinn undirbúningur í stjórnarráðinu vegna þess.
Í umræðunni um loftslagsmál sagði umhverfisráðherra að Ísland hefði nær fullnýtt heimildir í Kýótó-bókuninni til að losa gróðurhúsalofttegundir. Hún sagði það mat sérfræðinga að í þeim alþjóðlegu samningaviðræðum sem nú færu fram væru engar líkur á að Ísland fengi auknar heimildir til losunar eftir að gildistíma Kýótó-bókunarinnar lýkur árið 2012. Á nýju skuldbindingatímabili muni Ísland því þurfa að draga úr losun á sama hátt og önnur þróuð ríki. Stefnt er að því að ljúka gerð ný s bindandi samkomulags á 15. aðildarríkjaþingi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember á þessu ári.
Ísland hefur ákveðið að undirgangast viðskiptakerfi Evrópusambandsins um losunarheimildir, sem mun gilda um flugrekstur eftir 2011 og stóriðju eftir 2012. Þá munu íslensk fyrirtæki á þessum sviðum falla undir viðskiptakerfið og þar með gangast undir sömu reglur og kvaðir og sambærileg fyrirtæki í Evrópu. Umhverfisráðherra sagði það ljóst að öllum þróuðum ríkjum yrði gert að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og Ísland væri þar engin undantekning.
Samráðsfundir umhverfisráðuneytisins og félagasamtaka á sviði umhverfismála fara fram með reglulegu millibili. Þar er fjallað um þau mál sem fulltrúar félagasamtaka bera upp við umhverfisráðherra og jafnframt kynna sérfræðingar ráðuneytisins þau mál sem unnið er að í umhverfisráðuneytinu.
Markmið þessa samstarfs er að efla lýðræðislega umræðu um umhverfis- og náttúruvernd og auka samráð um stefnumörkun og framkvæmd umhverfisverndar. Að mati umhverfisráðuneytisins er framlag félagasamtaka við að upplýsa almenning, stjórnvöld og fjölmiðla mikilvægur þáttur í sjálfbærri þróun íslensks samfélags.
Félög sem eru þátttakendur í samstarfi við umhverfisráðuneytið eru:
weiter
Umhverfisráðuneytið
26. Februar 2009 17:09
Ursprung: Umhverfisráðuneytið
Bewertung
GSM endurvinnsla í Símabæ
Í Neytendahorni Dr. Gunna sem birtist á vísir.is og í Fréttablaðinu var nýlega fjallað um það að verslunin Símabær, Hverafold 8-10 í Grafarvogi sé farin að taka við notuðum farsímum sem síðan eru endurunnir á staðnum. Eigandi Símabæs er Gylfi Gylfason sem hratt endurvinnslunni af stað eftir að kreppan skall á og símaæðið rann af landsmönnum.
Undanfarin ár hafa um 120 þúsund farsímar selst árlega en meðalendingartími farsíma eru 18 mánuðir. Gylfi tekur á móti öllum tegundum farsíma og hleðslutækja fyrir þá. Uppgerðir farsímar eru síðan seldir á 1.000 til 5.000 kr. í Símabæ. Gylfi segir ekkert fara til spillis. Þeir hlutir sem Gylfi getur ekki nýtt beint í uppgerð tæki sendir hann flokkað úr landi til frekari endurnýtingar.
Sjá greinina í Neytendahorni Dr. Gunna.
Sjá nánar á vef Símabæs.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
17. Februar 2009 11:21
Ursprung: Símabær / Vísir.is
Bewertung
Neue Kommentare:
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















