Vorreiter: Nachhaltig

Vistvænt metanól komið á markað

Eldsneytisverksmiðja Carbon Recycling International (CRI) hefur hafið framleiðslu og er sala á blönduðu vistvænu metanóli hafin á bensínstöð N1 í Fossvogi. Til stendur að eldsneytið fari í frekari dreifingu innan nokkurra vikna, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Eldsneytið er framleitt úr koltvísýringi og orku úr jarðhita frá HS orku í Svartsengi, og fullyrða forsvarsmenn fyrirtækisins að þetta sé í fyrsta sinn sem vistvænt eldsneyti sé framleitt með þessum hætti í heiminum.

Metanólið sem framleitt er í verksmiðjunni er blandað bensíni og hentar þannig öllum bensínbílum, í samræmi við íslenskar og evrópskar reglur.

Það er selt á bensínstöð N1 við Kringlumýrarbraut. N1 og CRI undirrituðu nýlega samkomulag um markaðssetningu eldsneytisins hér á landi og er undirbúningur hafinn að dreifingu eldsneytisins á fleiri stöðvar.

CRI var stofnað árið 2006 og er með höfuðstöðvar í Borgartúni. Framkvæmdir við eldsneytisverksmiðjuna í Svartsengi hófust í lok árs 2010.


details

sh
16. November 2011 17:30
Ursprung: Fréttablaðið

Bewertung

Umhverfisvænt og sjálfbært hús í Wales

Simon Dale er fjölskyldufaðir og arkítekt frá Wales. Simon ákvað að byggja hús fyrir fjölskyldu sína og fékk hann hjálp frá tengdaföður sínum. Það tók um 4 mánuði að byggja húsið. Húsið er þó ekki eins og venjulegu húsin sem við erum svo vön að sjá í kringum okkur. Húsið minnir á lítið hobbitahús. Framkvæmdirnar kostuðu ekki nema 3.000£ eða um 550.000 kr.
Það sem er öðruvísi við þetta hús er að það var byggt með hámarks tilliti til umhverfisins og gefur fjölskyldunni tækifæri að lifa í fullkomnu jafnvægi við náttúruna. Húsið var byggt úr náttúrulegum hráefnum til að koma í veg fyrir að húsið myndi fyllast af alls konar krabbameinsvaldandi eitri sem er því miður raunin á flestum nútímaheimilum.

Nokkur atriði varðandi hönnun og byggingu hússins:

  • Grafið var í hlíð svo að sjónrænu áhrifin yrðu sem minnst.
  • Steinarnir og drullan sem fengust eftir að grafað var í hlíðina voru notaðir til að halda uppi veggjum og öðru.
  • Viðurinn var fenginn úr skóglendi umhverfis lóðina.
  • Hey er notað í gólfin, veggina og þakið fyrir einstaklega góða einangrun.
  • Kalk-gifs er notað í staðinn fyrir sement þar sem það andar vel og lítil orka var notuð við framleiðslu efnisins.
  • Endurunninn viður var notaður í gólfin.
  • Allt sem hugsanlega gæti vantað í framkvæmdirnar er hægt að finna á ruslahaug einhversstaðar.
  • Viðarofn er notaður til kyndingar.
  • Ísskápurinn er kældur þannig að köldu lofti er beint upp neðanjarðar frá.
  • Gluggi á þakinu gerir sólinni kleift að skína inn í húsið.
  • Sólarsellur gefa húsinu rafmagn fyrir lýsingu, tónlist og tölvunotkun.
  • Allt vatnið kemur frá læk sem er rétt hjá húsinu.

Í dag býr Dale fjölskyldan þó ekki í sama húsinu því þau hafa hafist handa við að byggja nýtt umhverfisvænt og sjálfbært hús á lóð fyrsta umhverfisvæna þorpsins í Wales (einnig betur þekkt sem “low impact” ecovillage). Hægt er að fá nánari upplýsingar og myndir á vef fjölskyldunnar, sem er www.simondale.net/house/index.htm

Mynd: Innan úr húsinu. Mynd tekin af vef www.simondale.net


details

Móna Róbertsdóttir Becker
22. September 2011 18:50
Ursprung: www.simondale.net

Bewertung

Nau - Sjálfbær fatnaður

Nau-fatnadur

Nau (borið fram eins og Ná eða Now í ensku) er fataframleiðandi staðsettur í Portland í Bandaríkjunum. Nau framleiðir sjálfbæran útivistarfatnað. Notast er við lífræn og endurunnin efni í framleiðslu fatnaðarins. Einnig er mikið notast við ull. Þrátt fyrir umfangsmikla starfsemi samanstendur Nau af færri en 20 starfsmönnum. Hugmyndin á bak við Nau er að endurhanna tískuna eins og hún er í dag og gera breytingar innan þessa stóra iðnaðar. Eitt lítið skref í átt að betri heimi.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Móna Róbertsdóttir Becker
30. August 2011 19:32
Ursprung: Nau

Bewertung

Niðursuðuverksmiðjan Akraborg ehf. fær MSC vottun

Framleiðsla á matvörum úr vottuðum sjálfbærum þorskveiðum við Íslandsstrendur uppfyllir alþjóðlegar kröfur

Vottunarstofan Tún hefur staðfest að fyrirtækið Akraborg ehf. á Akranesi uppfylli kröfur Marine Stewardship Council (MSC) um rekjanleika sjávarafurða sem upprunnar eru úr MSC-vottuðum sjálfbærum fiskveiðum. Vottunin var formlega staðfest með útgáfu vottorðs sem Rolf Hákon Arnarson framkvæmdastjóri Akraborgar ehf. hefur nú veitt viðtöku.

MSC-rekjanleikavottun (MSC Chain of Custody certification) staðfestir að hráefni og afurðir eru upprunnar úr sjálfbærum fiskistofnum. En slík vottun hefur breiðst hratt út á undanförnum árum samfara aukinni eftirspurn á alþjóðlegum mörkuðum eftir sjávarafurðum úr vottuðum nytjastofnum. MSC-vottunin greiðir íslenskum fyrirtækjum leið inn á gæðamarkaði sem skila hærra söluverði.

Með þessari vottun er staðfest að Akraborg ehf. viðhafi gæðastýringu sem tryggi aðgreiningu MSC-vottaðra fiskafurða frá öðrum hráefnum og afurðum á öllum stigum, þ.e. við móttöku hráefna, meðferð þeirra og flutning, auðkenningu í skráningarkerfum, merkingar á umbúðum og viðskiptaskjölum. Rekjanleikavottun samkvæmt staðli MSC gerir Akraborg ehf. kleift að afla sér hráefna og afurða úr MSC-vottuðum fiskveiðum og fiskistofnum, vinna frekar úr þeim og markaðssetja síðan með tilvísun til sjálfbærra sjávarnytja undir hinu þekkta vörumerki Marine Stewardship Council.  Vottunin sem Akraborg hlýtur nú tekur til framleiðslu og sölu á niðursoðinni lifur auk afurða unnum úr hrognum og svilum úr vottuðum þorski sem veiddur er á Íslandsmiðum.

Akraborg ehf. er fiskvinnslufyrirtæki á Akranesi sem framleiðir ýmsar vörur úr íslensku sjávarfangi, einkum úr þorski, en einnig úr öðrum tegundum svo sem skötusel, loðnu og smásíld. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á niðursoðinni þorskalifur. Hráefna sinna aflar Akraborg ehf. ferskra hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum víðs vegar um landið, meðal annars hjá fyrirtækjum sem veiða úr vottuðum sjálfbærum nytjastofnum. Hjá Akraborg starfa um 30 manns og eru vörur þess seldar víða um heim, m.a. í Evrópulöndum, Asíu og Norður Ameríku. Rolf Hákon Arnarson framkvæmdastjóri Akraborgar segir MSC vottun mikilvægan áfanga í sölumálum fyrirtækisins. „Eftirspurn eftir MSC vottuðum vörum hefur aukist jafnt og þétt undanfarið og svo komið að sumir kaupendur neita að kaupa nema MSC vottun sé til staðar. Vottunin er því stór áfangi fyrir Akraborg og mun verða okkur mikill styrkur til framtíðar.“

Gísli Gíslason ráðgjafi MSC á Íslandi segir að á undanförnum árum hafi orðið vitundarvakning um nauðsyn þess að vernda auðlindir sjávar og  stuðla að sjálfbærri nýtingu fiskistofna: “Íslenskt sjávarfang er eftirsótt og þekkt fyrir gæði víða um heim en á mörkuðum er vaxandi krafa afurðir komi úr vottum sjálfbærum fiskveiðum.  Nú hefur Akraborg fengið rekjanleikavottun samkvæmt kerfi MSC.  Þetta þýðir að Akraborg getur framleitt MSC vottaða þorsklifur þegar fyrirtækið kaupir hráefni úr MSC vottuðum þorsk veiðum í sína vinnslu. Þannig er staðfest  að hráefnið í þeirri afurð komi úr sjálfbærum veiðum sem hafa staðist staðla MSC, sem er útbreiddasta og þekktasta vottunarkerfi fyrir sjálfbærar fiskveiðar í heiminum í dag.”

Marine Stewardship Council hefur þróað staðla í samræmi við viðmiðunarreglur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) um ábyrgar fiskveiðar. Vottunarkerfi MSC nær annars vegar til úttekta á fiskistofnum og fiskveiðum og hinsvegar til rekjanleika á fiski og fiskafurðum úr vottuðum stofnum. Hátt á þriðja hundrað fiskveiðiútgerða eru ýmist vottaðar eða í vottunarferli MSC víða um heim, og skila þær árlega 9 m tonnum matfiskjar á land. Yfir 10.000 vörumerki í 74 löndum eru nú rekjanleg til þessara fiskveiða og bera því merki MSC á mörkuðum víða um heim. (Sjá nánar heimasíðu MSC, www.msc.org).

Vottunarstofan Tún hefur haft forgöngu um vottun lífrænna aðferða og sjálfbærra náttúrunytja hér á landi, í Færeyjum og á Grænlandi allt frá árinu 1994. Tún er faggild af Einkaleyfastofunni skv. staðli EN45011 og hlaut nýlega faggildingu þýsku faggildingarstofunnar Accreditation Services International GmbH (ASI) til þess að annast vottun samkvæmt stöðlum MSC um sjálfbærar fiskveiðar og rekjanleika afurða úr slíkum veiðum. Tún nýtur krafta reyndra íslenskra og erlendra sérfræðinga við vottun sjálfbærra sjávarnytja.

Ljósmynd: Rolf Hákon Arnarson framkvæmdastjóri (fyrir miðju) tekur við vottorði um MSC vottun Akraborgar ehf. úr hendi Gunnars Á. Gunnarssonar framkvæmdastjóra Vottunarstofunnar Túns ehf. (t.v.) að viðstöddum Gísla Gíslasyni ráðgjafa Marine Stewardship Council á Íslandi (t.h.).


details

Gunnar Á. Gunnarsson
10. August 2011 20:39
Ursprung: Vottunarstofan Tún ehf

Bewertung

Matsskýrsla um sjálfbærni þorsk-, ýsu- og steinbítsveiða við Ísland birt til umsagnar

Vottunarstofan Tún hefur tilkynnt birtingu skýrslu um mat á sjálfbærni þorsk-, ýsu- og steinbítsveiða við Íslandsstrendur. Um er að ræða mat á nokkrum fiskveiðiútgerðum undir forystu fiskútflutningsfyrirtækisins Sæmarks sjávarafurða. Útgerðarfyrirtækin gera út á handfæri, línu og dragnót, einkum við vestan- og norðanvert landið. Matið fer fram samkvæmt vottunarreglum Marine Stewardship Council (MSC), en þær byggjast m.a. á viðmiðunarreglum FAO um ábyrgar fiskveiðar.

Sæmark sjávarafurðir eru fyrsta íslenska fyrirtækið sem fer í gegnum slíkt mat (sjá frétt). Matsskýrslan, sem unnin er af sérfræðinefnd Vottunarstofunnar Túns, liggur nú frammi á heimasíðu MSC (sjá skýrsluna hér) og gefst þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta tækifæri til að bera fram athugasemdir, fyrirspurnir og tillögur um efni skýrslunnar fram til 22. apríl n.k.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Gunnar Á. Gunnarsson
20. März 2011 16:15
Ursprung: Vottunarstofan Tún ehf

Bewertung

1234

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep   okt   nov   dez  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Sóríasis
TAkk
:D 17. 01. 2012 20:21:
Iðnaðarsalt í matvælum
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: