Vorreiter: Zertifizierte Produktion

Zertifiziertes Produkt - Tún

Upprunavottun. Vottuð náttúruafurð eru þær afurðir skilgreindar sem ekki teljast lífrænar en eru af náttúrulegum uppruna, eru framleiddar með sjálfbærri nýtingu auðlindar, eru leyfileg aðföng í lífræna framleiðslu, og eru meðhöndlaðar frá söfnun til síðustu pökkunar eða merkingar eins og um lífrænar afurðir væri að ræða.

Sjá nánar á vef vottunarstofunnar Túns.


details
Náttúran
26. April 2010 15:56
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Oddi kynnir Svansmerktan gPóst

gPóstur er hagkvæm lausn fyrir fyrirtæki sem prenta efni til dreifingar í miklu magni, eins og reikninga, yfirlit, launaseðla, markpóst o.fl. gPóstur sparar umtalsverðan kostnað sem fellur til vegna viðhalds tækja, dreifingar og vinnustunda.

Lokur eru helsta viðbótin við gPóstinn. Lokur eru umslagalaus póstur sem notar helmingi minna magn pappírs samanborið við hefðbundinn póst í umslagi og er góður kostur fyrir fyrirtæki sem vilja sýna samfélagslega ábyrgð með að huga að umhverfinu. Með því að minnka það pappírsmagn sem notað er er stuðlað að minni orkunotkun sem verður til vegna framleiðslu, förgunar  og dreifingar. Lokur eru með norrænu umhverfismerkinguna Svaninn sem þýðir að leitast er við að draga úr umhverfisáhrifum á flestum stigum framleiðslunnar.
Upplýsingar eru prentaðar innan á Lokuna og hún svo (gufu) límd aftur. Hægt er að setja einblöðung eða bækling inn í Lokuna. Loka sem inniheldur 12 bls. bækling vegur undir 20 gr og  fellur inn í ódýrasta verðflokk Íslandspósts.

Prentsmiðjan Oddi hlaut í byrjun árs Svansmerkingu og starfar því eftir strangri umhverfisstefnu þar sem i hvívetna er leitast við að fara vel með hráefni og draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins á skilvirkan hátt.
Lokur er hagkvæm lausn fyrir fyrirtæki sem prenta efni til dreifingar í miklu magni, eins og reikninga, yfirlit, launaseðla, markpóst ofl. gPóstur sparar umtalsverðan kostnað sem fellur til vegna viðhalds tækja, dreifingar og vinnustunda.
Oddi tekur við gögnum á rafrænu formi, meðhöndlar samkvæmt óskum viðskiptavina sinna, prentar og sendir til viðtakanda. Með þessu móti er hægt að ná fram auknu öryggi við meðferð gagnanna auk þess býður þessi leið upp á að gera gögnin birtingarhæf á rafrænu formi í heimabönkum.

Sjá nánar um gPóst á vef Odda www.oddi.is.


details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. Februar 2010 12:22
Ursprung: Prentsmiðjan Oddi ehf

Bewertung

Fyrsta Svansmerkta bæklingnum frá Odda nú dreift í Evrópu

Kynningarbæklingur Ferðaþjónustu bænda, „The Ideal Holiday 2010“, er fyrsti prentgripurinn  sem  framleiddur er hjá Odda sem ber Svansmerkið, norræna umhverfismerkið. Bæklingurinn er prentaður í 25.000 eintökum og er hann kominn í dreifingu í Evrópu og víðar.  „Fyrir okkur, sem fyrirtæki í ferðaþjónustu skiptir umhverfisvottun á því prentverki sem við sendum frá okkur miklu máli.  Þegar við vissum að Prentsmiðjan Oddi væri að fá Svansvottun í lok árs 2009 ákváðum við að seinka útgáfu kynningarbæklingsins um nokkrar vikur til að geta Svansmerkt bæklinginn.  Við viljum að ímynd landsins byggist á hreinleika og náttúru og þess vegna þurfum við sem stöndum að kynningu Íslands að vera til fyrirmyndar. Sýnileiki markvissrar umhverfisvinnu skiptir því miklu máli þegar kemur að því að sýna viljann í verki“  segir Berglind Viktorsdóttir gæðastjóri hjá skrifstofu Ferðaþjónustu bænda sem er vottuð af Green Globe, alþjóðlegum umhverfisvottunarsamtökum í ferðaþjónustu.

Sjá Prentsmiðjuna Odda hér á Grænum síðum, og á Grænu korti í flokknum Grænt fyrirtæki en sá flokkur sýnir öll fyrirtæki á Íslandi sem hafa annað hvort Svaninn eða Green Globe.

Mynd: Sævar Skaptason framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda og Berglind Viktorsdóttir gæðastjóri og ritstjóri bæklingsins taka við fyrsta umhverfisvottaða eintakinu hjá Stefáni Hjaltalín sölustjóra hjá Odda.


details
Guðrún A. Tryggvadóttir og Hildur Hákonardóttir
22. Januar 2010 11:00
Ursprung: Prentsmiðjan Oddi ehf

Bewertung

Te & kaffi - ryður brautina fyrir Fair Trade vottun hérlendis

Fyrirtækið Te & Kaffi hefur fyst íslenskra fyrirtækja tekist að fá Fair Trade vottun (siðgæðisvottun, einnig þýtt sem réttlætismerking) á vöru hér á landi.

Kaffihrábaunir sem upprunanlega eru ræktaðar á grundvelli Fair Trade má ekki selja unnar (brenndar, malaðar og pakkaðar) sem slíkar án þess að framleiðsluyrirtækið sjálft fái leyfi FLO Fairtrade Labelling Organization til að merkja vöru sína sem Fair Trade vöru. Náttúran.is bað  Te & Kaffi um að lýsa hvað það þurfti að gera til að fá siðgæðisvottun á vöruna þannig að aðrir geti fræðst og lært af reynslunni sem skapar ákveðið fordæmi fyrir íslenska aðila sem hugsanlega hafa áhuga á að feta í fótspor Te & kaffis. Kristbjörg Marteinsdóttir hjá Te & Kaffi tók reyslusöguna saman í eftirfarandi texta:

„Við hófumst handa við að kanna þann möguleika að fá að framleiða og selja Fairtrade vottað kaffi þegar einn viðskiptavinur fyrirtækisins, Háma í Háskóla Íslands, vildi bjóða upp á kaffi sem hefur þessa vottun. Í fyrstu fengum við synjun þar sem ekki væri nein umboðsskrifstofa á Íslandi fyrir Fairtrade. Innan Hjálparstofnunar Kirkjunnar var Lydia Geirsdóttir verkefnastjóri að kynna Fairtrade verkefnið fyrir Íslendingum og íslenskum fyrirtækjum og þekkti vel til fyrir hvað Fairtrade stendur. Við vorum í nánu samstarfi við hana til að byrja með og reyna að fynna lausn á því hvað við gætum gert í stöðunni.  

Í ágúst 2007 ákvað skráningastofa Fairtrade, Flo- Cert, í Bonn í Þýskalandi að opna fyrir umsóknir fyrir lönd sem ekki væru með umboðsskrifstofu í sínu heimalandi. Þetta varð til þess að fyrirtækið einhenti sér í að sækja um. Umsóknarferlið tók alls 6 mánuði með tilheyrandi fyrirspurnum, samskiptum, samningum og mikilli pappírsvinnu. Bæði þurfti samþykki fyrir merkingum á umbúðum við Fairtrade Labelling Organizations International og síðan sjálf samningagerðin við Flo Cert, þar sem Te & Kaffi þurfti að samþykkja og undirgangast ýmis skilyrði sem samtökin hafa sett framleiðendum til að tryggja gagnsæi og samræmi í meðferð, framleiðslu og sölu Fairtrade vottaðara kaffihrábauna.

Í Janúar 2008 fékk Te & Kaffi vottunarnúmer sem staðfestir að fyrirtækið má nú kaupa Fartrade vottaðar kaffihrábaunir vinna þær og selja með Fairtrade merkingu, en þess má geta að seljendur hrábauna mega einungis selja þeim Fairtrade hrábaunir sem hafa slíkt vottunarnúmer.


weiter
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
21. September 2009 11:12
Ursprung: Te og Kaffi

Bewertung

Húðvörur frá Urtasmiðjunni á Náttúrumarkaði

Á Náttúrmarkaðinum hér á vefnum eru nú fáanlegar tvær vörur frá Urtasmiðjunni á Svalbarðsströnd. Urtasmiðjan fékk nýlega vottun um að jurtirnar sem notaðar eru í framleiðsluna séu tíndar á landi í lífrænni/sjálfbærri aðlögun. Meðal jurtanna má nefna blágresi, blóðberg, vallhumal og ætihvönn. Vottunin tryggir að meðferð lands og nytjastofna sé í samræmi við kröfur um sjálfbæra nýtingu. 

Skoðið Græðismyrslið og Fótaáburðinn á Náttúrumarkaðinum. Ef þú ert að versla í fyrsta skipti hér á vefnum þá skoðaðu hvernig búðin virkar.

Frumkvöðullinn Gígja Kjartansdóttir Kvam hefur unnið að uppbyggingu Urtasmiðjunnar ásamt fjölskyldu sinni síðastliðin 19 ár. Urtasmiðjan framleiðir húðvörur undir merkinu „Sóla“, snyrtivörur úr íslenskum jurtum og öðru náttúrulegu hráefni. Framleiðslan byggir á gömlum hefðum og dýrmætri þekkingu á notkun heilsujurta, sem og nútíma rannsóknum á hollustuáhrifum jurtanna.

Jurtirnar eru handtíndar í norðlenskri náttúru Íslands þar sem þær vaxa villtar í sínu náttúrulega og hreina umhverfi. Erlendar jurtir í framleiðslunni eru lífrænt ræktaðar og hafa alþjóðlega lífræna vottun.

Urtasmiðjan notar einungis hrein náttúruleg og lífræn hráfefni í framleiðsluna s.s. óbleikjað bþvax, sheasmjör, kókosmjör, maís og sojavax, jurtaolíur, Omega 3, 6 og 9 ríkar af fjölómettuðum fitusýrum, s.s. kvöldvorrósar-, rósaberja- og hafþyrnisolíu. Jurtaextraktar, essensar, þráavörn og rotvörn er allt unnið úr jurtum, rótum og kjörnum. Þetta eru hráefni sem einnig eru notuð í náttúrulega og lífræna matvælaframleiðslu. Vörurnar innihalda ekki kemísk efni s.s. paraben, litarefni, ilmefni eða jarðolíur-, petrolatum, parafín, vaselín eða dýraafurðir.

Engar tilraunir eru gerðar á dýrum við þróun og framleiðslu vörunnar.
Öll framleiðslan er handunnin frá byrjun til enda.

Vörur Urtasmiðjunnar eru ekki lyf, þær eru 100% náttúruleg og lífræn heilsuvara/snyrtivara með lífrænum og villtum jurtum úr íslenskri náttúru. Sjá Urtasmiðjuna hér á Grænum síðum.


weiter
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
11. November 2008 08:02
Ursprung: Náttúran.is / Urtasmiðjan

Bewertung

123

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: