Vorreiter: Neu auf dem Markt
Nýtt frá Móður jörð - Rauðrófugló
Komin er á markað ný vara frá Móður Jörð og nefnist hún „Rauðrófugló“. Rauðrófugló Móður Jarðar er bragðmikil grænmetisblanda sem bragðast vel með villibráð, lambasteikum, svínakjöti og flestum grænmetisréttum. Einnig með ýmsum ostum, t.d. gráðaostum.
Rauðrófur eru þekktar fyrir hollustu og við mælir framleiðandinn Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi með þeim sem hollri viðbót með öllum mat.
Innihald: Rauðrófur, laukur, epli, hrásykur, eplaedik, vatn, engifer, hvítlaukur, kóríander, sjávarsalt, eldpipar.
Á vörunni er auk merki Móður jarðar merki Austfirskra krása en Vallanes er þátttakandi í matarklasanum Austfirskar krásir. Sjá alla meðlimi í Austfirskum krásum hér á Grænum síðum.
Helstu sölustaðir Rauðrófuglóar eru: Melabúðin, Yggdrasill, Krúska, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Maður lifandi, Brauðhúsið, Hjá Jóa Fel, Blómaval, Hagkaup, Ostabúðin Skólavörðustíg, Ostahúsið, Búrið Nóatúni 17 og Café Valný og Samkaup á Egilsstöðum.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
28. Dezember 2009 11:06
Ursprung: Móðir Jörð ehf
Bewertung
Nýtt merki Móður Jarðar
Móðir Jörð, lífrænt vottað framleiðslufyrirtæki Eymundar Magnússon í Vallanesi á Héraði, hefur nú tekið upp nýtt merki.
Merkið er hannað af Igor hjá Designgroup Italia í Mílano.
Tilgangurinn með nýja merkinu er að senda einfaldari og skýrari skilaboð um nálægð Móður Jarðar við móður jörð, ef svo má að orði komast.
Það mun taka nokkurn tíma að skipta út umbúðum á öllum vörum svo til að byrja með verða báðar útgáfurnar í gangi.
Sjá nánar um Móður Jörð á vef fyrirtækisins www.vallanes.net. Heilsa sér um drefingu á vörum Móður Jarðar.
Sjá Móður Jörð hér á Grænum síðum en nokkrar vörutegundir Móður Jarðar eru til sölu hér á Náttúrumarkaði. Birkiolía, Blágresisolía, Lífolía, og lífrænt byggmjöl.
details
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
2. Dezember 2009 09:05
Ursprung: Náttúran.is
Bewertung
Smáskammtar frá Jörth
Jörth er nýtt fyrirtæki í eigu Birnu Ásbjörnsdóttur en hún er menntaður smáskammtalæknir (hómópati) frá The College of Practical Homeopathy, London. Hún hefur einnig menntað sig í næringarþerapíu (Nutritional therapy) og einstaklingsráðgjöf (Counseling).
Jörth ehf. er staðsett að Sólheimum í Grímsnesi og framleiðir og selur náttúruvörur ásamt því að veita ráðgjöf hvað varðar hollt mataræði og heilbrigðan lífsstíl. Fyrirtækið vinnur út frá strangri stefnu um umhverfisvæni bæði á framleiðslustiginu sem og í vali á innihaldsefnum og umbúðum.
Vörurnar - Smáskammtar:
Allar jurtir eru villtar eða lífrænt ræktaðar og flestar eru þær tíndar hér á landi. Ef um sérstakar jurtir eða önnur náttúruefni er að ræða eru þau innflutt frá birgjum sem eru á svipaðri línu.
Íslensku jurtirnar eru tíndar á ákveðnum tímum í tengslum við himintunglin en kallast sú tínsluaðferð „lífefld eða biodynamisk” (Sjá skýringar á wikipedia.org/wiki/Biodynamics).
Þannig er kraftur jurtanna mestur og lækningamátturinn talinn meiri.
Samsetning Smáskammta frá Jörth er einstök og ekkert í líkingu við þær sem til eru á markaði í dag. Kenningar á bak við Smáskammtana koma úr nokkrum áttum en má nefna Smáskammtafræðin (Homeopathy), Mannspeki (Anthroposophy) og Næringarþerapíu (Nutritional Therapy).
weiter
Birna Ásbjörnsdóttir
1. Dezember 2009 11:47
Ursprung: Jörth ehf
Bewertung
Sóley organics komið á markað
„Sóley” – spánný íslensk húðsnyrtivörulína, sem er 100% náttúruleg, umhverfisvæn og án allra óæskilegra aukaefna, er nú komin á markað á Íslandi. “Sóley” samanstendur af eyGLÓ andlitskremi, fersk andlitsfroðu, nærð hreinsivatni, hrein andlitsmjólk, mjúk líkamsskrúbbi og GRÆÐIR fjölskyldusjampói, ásamt birkiR, sérstakri herrasápu fyrir húð og hár.
Uppistaðan í “Sóley” eru kraftmiklar villtar íslenskrar jurtir, þar með talið handtínt birki og vallhumall sem saman mynda grunninn í allri nýju húðsnyrtivörulínunni. Þann grunn sótti Sóley Elíasdóttir, eigandi og stofnandi “Sóley”, í aldagamla uppskrift sem varðveist hefur í fjölskyldu hennar til dagsins í dag.
“Sóley” húðsnyrtivörurnar eru framleiddar hjá Fagvörum ehf., matvælaframleiðslufyrirtæki í Hafnarfirði, sem kemur heim og saman við hugsun nútímans sem er á þá lund að allt sem þú berð á húð þína áttu einnig að geta borðað, þótt ekki sé mælt sérstaklega með því. Að auki vinnur “Sóley” nú með alþjóðlegri markaðsstofu í London sem hyggst koma vörum hennar á framfæri erlendis en mikill áhugi er á hreinum húðsnyrtivörum með íslenskum lækningajurtum víða.
Heilsa ehf sér um dreifingu á “Sóley” húðsnyrtivörulínunni. “Sóley” húðsnyrtivörurnar fást í verslunum Lyfju um land allt og í Heilsuhúsinu í Reykjavík, Kópavogi og á Akureyri.
details
Dagný Reykjalín
23. November 2009 20:32
Ursprung: Eitthvadannad.is
Bewertung
Íslenskar náttúrusápur á Náttúrumarkaði
Á Náttúrmarkaðinum hér á vefnum eru nú hægt að kaupa tvær vörur, Heiðasælu - blóðbergssápu og Sveitasælu - með íslensku byggi, mjólk og hunangi, frá hinu nýja fyrirtæki „Sælusápum“ í Kelduhverfi sem framleiðir og selur handgerðar íslenskar gæðasápur úr náttúrulegum hráefnum. Uppskriftirnar eru allar hannaðar af frumkvöðlinum Guðríði Baldvinsdóttur sem er sauðfjárbóndi og skógfræðingur að mennt.
Hráefnisöflun er sem mest í heimabyggð og lögð er áhersla á að nota íslensk hráefni svo sem tólg og villtar jurtir. Einnig er notað íslenskt bygg, hunang og mjólk úr þingeyskum kúm. Sjá nánar um Sælusápur og staðsetningu hér á Grænum síðum.
Sjá Heiðasælu og Sveitasælu á Náttúrumarkaði. Ef þú ert að versla í fyrsta skipti hér á vefnum þá skoðaðu hvernig búðin virkar.
Um sápugerð:
Sápa í sinni einföldustu mynd er gerð úr fitum/olíum, vatni og basa (yfirleitt vítissóda NaOH). Þegar þessum innihaldsefnum er blandað saman hefst ferli sem kallast sápun (saponification) þar sem efnahvarf verður milli innihaldsefnanna og úr verður algjörlega nýtt efni : sápa. Enginn vítissódi er til staðar í tilbúnum sápum, því sápuuppskrifti reru yfirleitt yfirmettaðar með olíum, bæði til að tryggja að enginn vítissódi sé til staðar og einnig til að tryggja að sápur séu mildari og að auka olía sé til staðar fyrir aukna húðvernd.
Í nútíma iðnaði er iðulega bætt við ýmsum aukaefnum til að stytta framleiðsluferli, tryggja að vörurnar þoli flutning heimshornana á milli, þoli hnjask og geymslu við misjöfn skilyrði. Því eru oft og iðulega notuð rotvarnarefni, sölt og fylliefni, ásamt því að listi ilm-og litarefna er oft langur.
"Gamaldags" sápur eins og framleiddar eru hjá Sælusápum eru afturhvarf til fortíðar hvað varðar framleiðsluferli og innihald, þó nýtt sé nútímaúrval af gæða olíum til að tryggja að sápurnar séu mildar fyrir húðina.
weiter
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
28. Juni 2009 15:45
Ursprung: Náttúran.is / Sælusápur / Lón 2 ehf
Bewertung
Ereigniskalender
| Mo | Di | Mi | Do | Fr | Sa | So |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 |
Athugasemd veðurfræðings
Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll á Suður- og Vesturlandi og á Miðhálendinu með morgninum og fram eftir degi.
Skrifað af vakthafandi veðurfræðingi 03.09.2010 01:03

Neue Kommentare:
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:















