: Gefahr & Sicherheit

Leikföng á Náttúrumarkaði

Náttúruleg leikföng eru þau leikföng oft kölluð sem framleidd eru úr náttúrulegum efnum. Oft eru náttúrulegu efnin þó sjálf mettuð aukaefnum og máluð eða lökkuð með óvistvænum efnum sem ekki eru sérstakleg heilsusamleg og jafnveg skaðleg.

Góð leikföng þurfa ekki alltaf að vera úr hreinum náttúrlegum efnum þó að þau geti verið það. Gerviefni geta verið jákvæð út frá umhverfissjónarmiðum sérstaklega ef að leikfangið er vandað og endist jafnvel kynslóð fram af kynslóð. En leikfangabransinn gengur ekki bara út á það að framleiða heilsusamleg og uppeldislega jákvæð leikföng, hvað þá umhverfisvæn og langlíf.

Það er því margt sem ber að hafa í huga við val leikfanga fyrir börnin okkar.
Umhverfismerki á borð við Svaninn og Demeter tryggja t.a.m. að tekið sé fullt tillit til umhverfisáhrifa við framleiðslu vörunnar.
Eitt af því sem að skaðað getur heilsu barna eru þalöt eða mýkingarefni sem eru talin vera skaðleg heilsu fólks þar sem þau eru í mörgum tilfellum lík hormónum í líkamanum og hafa því hormónatruflandi áhrif. Þetta er sérstaklega varasamt í leikföngum þar sem þau eru notuð af börnum sem eru að vaxa og þroskast og hormónatruflanir geta haft veruleg áhrif á vöxt og þroska einstaklingsins í framtíðinni.

Sjá allt um leikföng í barnaherberginu.

Öllum er velkomið að selja vörur í gegnum Náttúrumarkaðinn. Skoða leikfangadeild Náttúrumarkaðarins.


weiter
Náttúran er
29. Juni 2010 16:56
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Snyrtivörur á Náttúrumarkaði

Snyrtivörur varða daglega umhirðu líkama okkar. Margar snyrtivörur höfða mest til skjótfenginna fegurðaráhrifa en taka lítið tillit til áhrifa á heilsu notandans eða umhverfisáhrifa til lengri tíma.

Til eru lífrænt vottaðar snyrtivörur, umhverfisvottaðar og siðgæðisvottaðar. Snyrtivörur geta innihaldið bæði tilbúin og náttúruleg efni. Stundum koma náttúrulegu efnin beint úr jurtum, en oft er búið að einangra þau til að fá nákvæmlega þá virkni sem óskað er eftir í vörunni. Fræðiheiti sem hljóma ónáttúruleg geta verið nöfn á einstökum náttúrulegum efnasamböndum. Í snyrtivörudeildinni eru allar upplýsingar af umbúðum skráðar nákvæmlega í samræmi við gildandi reglur. Fólk getur haft ofnæmi fyrir einstökum efnum, þótt þau séu náttúruleg, til að mynda fyrir hnetum eða ilmefnum. Skoðið því vel innihaldsefnin.

Það að gera vel við líkamann með vönduðum snyrtivörum er eitthvað sem allir ættu að leyfa sér. Góðar snyrtivörur eru líka frábær gjöf þegar fólk vill sýna öðrum umhyggju.

Öllum er velkomið að selja snyrtivörur sem og aðrar vörur í gegnum Náttúrumarkaðinn. Skoða snyrtivörudeild Náttúrumarkaðarins.


weiter
Náttúran er
26. Mai 2010 12:45
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Washing or doing the laundryWashing or doing the laundryThe Washing MachineThe DryerCleaning ProductsCleaning ProductsCleaning ProductsCleaning ProductsCleaning ProductsCosmeticsCosmeticsCosmeticsCosmeticsCosmeticsCosmeticsBathroom ClosetLightingTextilesThe ShowerThe BathtubThe BathtubCurtainsThe WindowCleaning ProductsThe SinkBathroom ClosetThe ToiletFirst AidLightingThe Bathroom
Beim Anklicken der Gegenstände auf dem Bild erscheinen weitere Informationen

Baðherbergið - Skyndihjálp

Hringið í Neyðarlínuna 112 ef slys ber að höndum.

Ef um minni skrámur eða veikindi er að ræða er góður sjúkrakassi eitt það allra nauðsynlegasta á heimilinu. Einnig er gott að hafa mikilvægustu símanúmer á ísskápshurðinni og á miða í sjúkrakassanum. Plástrar í ýmsum stærðum, sáraumbúðir, teygjubindi, verkjalyf og sótthreinsandi áburður er það allra nauðsynlegasta.

Það er staðreynd að flest slys hér á landi verða innan veggja heimilisins. Sérstaklega þarf að gæta varúðar ef smábarn er á heimilinu. Þá þarf að taka öll sterk efni og þvottaefni, lyf og rafhlöður svo eitthvað sé nefnt og geyma þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Best er að fara reglulega á námskeið í hjálp í viðlögum og vera þess meðvitaður að alltaf getur eitthvað komið fyrir og nauðsynlegt er að vita hvernig maður bregst best við tilteknum aðstæðum. Líf getur legið við, þitt eða annarra.

Víða um landið halda deildir Rauða krossins skyndihjálparnámskeið fyrir almenning. Á hverju ári fara um  6 þús. til 8 þús. manns á slíkt námskeið. Samkvæmt samningi við íslensku ríkisstjórnina, hefur Rauði Kross Íslands yfirumsjón með fræðslu um skyndihjálp, leggur fram kennsluefni og tryggir að verið sé að nota nýjustu aðferðir. Rauði Krossinn heldur einnig námskeið um félagslega- og sálræna aðstoð, og skipuleggur neyðaraðstoð þegar stór slys verða eða náttúruhamfarir.

Símanúmer hjá heimilislækni, aðstandendum og næstu heilsugæslustöð ættu að vera í sjúkrakassanum og á ísskápshurðinni. Einnig upplýsingar um ofnæmi, lyfjatöku eða annað sem kemur heilsu heimilisfólks við.


details
Náttúran er
29. Juli 2008 21:18
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Orð dagsins 3. apríl 2008

Margar vörur fyrir smábörn innihalda efni sem eru skaðleg umhverfi og heilsu, en sjaldnast í hættulegu magni. Þetta kemur fram í nýrri athugun Umhverfisstofnunar Danmerkur (Miljøstyrelsen), þar sem m.a. voru athuguð efni í púðum, dþnum, barnavagnasvuntum og klútum af ýmsu tagi. Meðal efna sem fundust voru formaldehýð og tólúen, sem bæði eru skaðleg og hugsanlega krabbameinsvaldandi í háum styrk. Í skýrslu Miljøstyrelsen kemur fram, að þó að efnin hafi í nær öllum tilvikum verið undir viðmiðunarmörkum, þá valdi niðurstöðurnar engu að síður áhyggjum af hugsanlegum samanlögðum krónískum áhrifum við endurtekna snertingu, enda sé þessi efni víða að finna í umhverfi smábarna. Danska upplýsingamiðstöðin um umhverfi og heilsu (IMS) ráðleggur foreldrum að þvo og viðra nýjar vörur fyrir börn áður en þær eru teknar í notkun, og jafnframt að gæta þess að börn setji ekki vörur af þessu tagi upp í sig.
Lesið frétt IMS 1. apríl sl.  

details
Stefán Gíslason
3. April 2008 21:12
Ursprung: Staðardagskrá 21

Bewertung

Varnarlaus gegn mengunarslysum

Fjölmenni ræddi kosti og galla olíuhreinsunarstöðvar á Vestfjörðum á Bíldudal í gærdag. Sérfræðingar reifuðu þar sjónarmið atvinnusköpunar og umhverfisverndar. Fjórðungssamband Vestfjarða stóð að málþinginu í félagsheimilinu á Bíldudal. Samskonar málþing verður á Ísafirði í dag.

Olíuhreinsunarstöð þyrfti gríðarmikla orku eða sem nemur nærri því heilli Kárahnjúkavirkjun. Hana má annað hvort framleiða með vatns- eða gufuafli, eða með olíu sem brennd yrði á staðnum. Evrópu eru um eitt hundrað olíuhreinsistöðvar, tvær þeirra í Noregi. Sú stærri, Mongstad, er norðan við Bergen, og þar eru unnin um 20 milljón tonn af hráolíu á ári.

Við þá vinnslu verða til um tvær milljónir tonna af koltvísýringi. Sú minni er við Óslóarfjörð og þar eru unnin 5,8 milljón tonn af olíu árlega, koltvísýringslosunin er um 380 þúsund tonn á ári. Forsvarsmenn Íslensks Hátækniiðnaðar , sem stendur á bak við áform um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum, ætla að vinna þar árlega um átta milljónir tonna af hráolíu. Þeir telja að koltvísýringslosunin þar verði um 560 þúsund tonn á ári. Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur telur losunina hins vegar verða nærri tvöfalt meiri. Heildarlosun landsmanna á koltvísýringi á þessu ári, að meðtaldri losun álversins á Reyðarfirði, verður líklega rúmar fjórar milljónir tonna.

Fram kom í máli Ragnars Baldurssonar hjá utanríkisráðuneytinu á málþinginu í dag að illa sé hægt að bregðast við verði meiriháttar olíuslys verða hér við land. Í lok júlí 2006 steytti rússneskt olíuskip á ísjaka fyrir norðan landið. Íslendingar eru varnarlausir gegn meiriháttar mengunarslysum segir embættismaður í utanríkisráðuneytinu.


details
Ríkisútvarpið
24. Februar 2008 08:51
Ursprung: Ríkisútvarpið ohf

Bewertung

123456

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Kúrbítur
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Landvernd hvetur til pólítískrar sáttar um stækkun friðlands í Þjórsárverum
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
Hundur bjargar lífi 5 krakka
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Þurrkun jurta og blóma - haustföndur
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Margsaga Magma
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55: