Í fararbroddi

Vín úr lífrænt ræktuðum vínþrúgum frá S-Ameríku nú seld á Íslandi:

Vínó ehf. fær vottun

Víninnflutningsfyrirtækið Vínó ehf. í Mosfellsbæ hefur fengið vottun Vottunarstofunnar Túns til innflutnings og markaðssetningar á vínum frá Suður-Ameríku, sem framleidd eru úr víný rúgum samkvæmt alþjóðlegum reglum um lífræna ræktun.

Vottunin nær til nokkurra tegunda af hvítvíni og rauðvíni frá Argentínu og Chile. Með henni er staðfest að vín þessi eru framleidd samkvæmt kröfum sem eru sambærilegar við þær sem gerðar eru til lífrænnar vínræktar og víngerðar í Evrópu.

Vínó ehf. er fyrsti íslenski innflytjandi vína sem hlýtur vottun samkvæmt reglum um lífræna framleiðslu. Jafnframt er fyrirtækið hið fyrsta hér á landi sem hlýtur vottun sem krafist er til markaðssetningar á lífrænum vörum sem fluttar eru inn frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Með vottun Túns er staðfest að víný rúgur sem notaðar eru til víngerðarinnar eru ræktaðar með lífrænum aðferðum, þ.e. án tilbúins áburðar og eiturefna, og að víngerðin uppfylli kröfur sem gerðar eru til úrvinnslu lífrænna hráefna.

Lífræn vínrækt og víngerð er í mikilli sókn

Vottunin staðfestir einnig að fyrirtækið Vínó ehf. vinnur eftir alþjóðlegum reglum um innflutning, merkingar og markaðssetningu lífrænna afurða frá löndum utan EES.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Vottunarstofan Tún
16. Januar 2008 15:03
Ursprung: Vottunarstofan Tún ehf

Bewertung

Ítalía pasta- og tómatvörur fá lífræna vottun

Vottað lifrænt Tún logo

Hagkaup fær vottun til vinnslu á pasta- og tómatvörum sem seldar eru undir vörumerkinu Ítalía. Um er að ræða hluta af því vörumerki og fær Hagkaup heimild til að merkja þær
afurðir sem lífrænar og setja vottunarmerki Túns á þær.

Hagkaup fær vottun Túns á því að öll hráefni vottaðra vörutegunda eru ræktuð með lífrænum aðferðum í sátt við náttúruna án notkunar eiturefna, tilbúins áburðar eða erfðabreyttra lífvera. Ennfremur er staðfest að við vinnslu varanna er nákvæmlega farið eftir alþjóðlegum stöðlum um meðferð hráefnis í úrvinnslu, pökkun og merkingu.


details

Vottunarstofan Tún
21. November 2007 12:59
Ursprung: Vottunarstofan Tún ehf

Bewertung

Sólarræsting fær Svansvottun

Svanurinn

Sólarræsting ehf. fékk formlega afhenta umhverfisvottun Svansins að viðstöddum umhverfisráðherra Þórunni Sveinbjarnardóttur þann 8. ágúst sl. Þórsteinn Ágústsson, framkvæmdastjóri Sólarræstingar segir vottunina afar mikilvæga og fyrirtæki leggi í ríkari mæli áherslu á vottun sem þessa sem skili sér aftur í auknum viðskiptum og ánægðari viðskiptavinum.

Svanurinn er sameiginlegt umvherfismerki stjórnvalda á Norðurlöndunum en Norræna ráðherranefndin setti það á laggirnar árið l989. Í upphafi hófu Svíar, Norðmenn og Finnar þetta samstarf en Íslendingar bættust í hópinn 1991 og Danir árið 1997. Svanurinn byggir á viðmiðunarkröfum sem taka til margra þátta á öllu lífsferli viðkomandi vöru eða þjónustu hvað varðar notagildi og umhverfisáhrif. Séu kröfurnar uppfylltar, fæst leyfi til að nota Svansmerkið.

Sólarræsting er annað ræstingarfyrirtækja á Íslandi til að hljóta Svansvottun en Fyrirtækjaþjónusta Enjó fékk vottun árið 2005.

Svanurinn er trygging neytenda fyrir gæðavöru sem skaðar umhverfið minna en aðrar vörur til sömu nota.

Það er alls ekki hlaupi að því að fá vottun sem þessa og talsvert átak að laga fyrirtæki að kröfum umvherfisvottunar Svansins. Undirbúningur Sólarræstingar að þessari viðurkenningu hófst sl. haust og hafa allir ferlar innan fyrirtækisins breyst með tilliti til Svansvottunarinnar. Nauðsynlegt var að skipuleggja alla hluti uppp á nýtt og búa til nýja verkferla og fara eftir þeim.

Í dag notar Sólarræsting eingöngu Svansmerkt efni við þrif. Fjöldi efna sem notaður er við ræstingar hefur minnkað úr 13 í 4. Annar mikilvægur þáttur er sá að minnkun notkunar á plastpokum hjá fyrirtækinu er gríðarleg í kjölfar vottunarinnar en hún fór úr um 3 tonnum á ári í 1 tonn.

details

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
18. Oktober 2007 07:26
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

Jurtaapótek fær lífræna vottun

Lífræn heilsuvöruframleiðsla á Íslandi - Jurtaapótek Kolbrúnar grasalæknir ehf.fær vottun.

Jurtaapótek Kolbrúnar grasalæknis ehf. á Laugavegi 2 í Reykjavík fær í dag vottun Vottunarstofunnar Túns til vinnslu, pökkunar og sölu afurða úr jurtum og jurtaolíum samkvæmt alþjóðlegum reglum um lífrænar aðferðir.

Vottunin nær til vinnslu á lífrænum lækningajurtum, te- og kryddjurtum, jurtaolíum, og öðrum heilsu- og snyrtivörum. Vottorð þessu til staðfestingar verður afhent í Reykjavík í dag, sunnudaginn 26. ágúst 2007.

Vottunin undirstrikar aukinn áhuga á nýtingu hreinna og ómengaðra jurta til bættrar heilsu, náttúrulegrar meðferðar við ýmsum kvillum, svo og mataræðis og umhirðu eigin líkama, sem eflir ónæmiskerfi og fyrirbyggir sjúkdóma.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Vottunarstofan Tún
26. August 2007 14:30
Ursprung: Vottunarstofan Tún ehf

Bewertung

Toyota fær ISO 14001 vottun

Iso14001_logo Toyota á Íslandi er áttunda íslenska fyrirtækið til að hljóta umhverfisvottun skv. alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001. Sjá lista yfir þau fyrirtæki sem hlotið hafa ISO 14001 hér á Grænum síðum. Toyota hefur verið einn fremstur bílaframleiðanda í heiminum til að hanna umhverfsivænni bíla og hefur fyrirtækið svo sannarlega verið í framvarðasveit á þeim vettvangi um árabil. ISO 14001 umhverfisstaðallinn er þó ekki sjálfvirkt tengdur umhverfisstefnu mmóðurfyrirtækisins heldur þarf hvert umboð í hverju landi að standast kröfur þar sem settar eru í umhverfisstjórnunarkerfinu ISO 14001.

ISO 14001umhverfisstjórnunarstaðallinn er til að hjálpa fyrirtækjum til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum sínum, uppfylla gildandi umhverfisreglugerðir og starfsleyfisákvæði.

ISO 14001 leggur áherslu á það hvernig varan er framleidd en ekki vöruna sjálfa. Vottun umhverfisstjórnunarkerfisins er framkvæmd af hlutlausum þriðja aðila.


details

Guðrún Arndís Tryggvadóttir
4. Juli 2007 14:12
Ursprung: Náttúran.is

Bewertung

123

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mär   apr   mai   jun   jul   aug   sep   okt   nov   dez  

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Neue Kommentare:

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: