Nachrichten

Rifsber og rifsberjahlaup

Rifsber þurfa góðan raka meðan berin eru að þroskast til þess að þau verði stór og safarík. Hefðbundna aðferðin er að gera hlaup úr berjunum. Ef hlaup mistekst hafa berin að öllum líkindum verið orðin of þroskuð. Hleypiefnið er í þeim ljósu og þarna er um að gera að tína snemma og að vera á undan þröstunum. Hlaupið verður samt rautt og fallegt. Hafi hlaup mistekist má annaðhvort nota það sem dásamlega sósu eða hella því aftur í pottinn, kaupa sultuhleypi og endursjóða. Það má frysta rifsberjahlaup ef það á að geymast til jólanna.

Rifsberjahlaup:
Notað er 1 kg af sykri á móti 1 kg af berjum, 1/2 bolli af vatni og ein stöng af vanillu. Hrein berin, stönglar og jafnvel lauf eru soðin í vatninu 10–15 mínútur þangað til þau eru sprungin, síuð frá og sett upp aftur með sykrinum og vanillunni, froðan veidd ofan af og soðið í 20 mínútur þangað til loðir milli fingra en ekki lengur. Það má reyna að minnka sykurinn og gera tilraunir með fjallagrös sem rotvarnarefni.

Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.

Myndir teknar 21.08.2008. Efst; Nýtínd rifsber. Neðri myndirnar sýna sýjun berjanna eftir suðu, séð ofan frá og frá hlið .Gott er að strengja bleyju (t.d. á koll á hvolfi, endarnir fjórir festir með teygju á stólfæturnar) og láta rifsberjasafann leka rólega í gegnum bleyjuna í skál. Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir.





Bewertung

Kategorien:
0 Kommentar:

Kommentiere

Name:

Kommentare:


Bitte lösen Sie die matematische Aufgabe hier oben und schreibe die Antwort in das Feld.
Gemacht um die menschliche herkunft des Textes zu sichern

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Ähnliche Texte:

Mutter Natur: Vegetation & Ernte [219]

Mutter Natur: Im Kessel [118]

Mutter Natur: Pflanzen [209]

Mutter Natur: Freie Ernte [78]

Nahrung: Rezepte [144]

Grüne Seiten:

Pflanzen [2]

Neue Kommentare:

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

Fréttir frá: