Nachrichten

Þannig virkar Endurvinnslukortið

Til þess að einfalda endurvinnsluna og hvetja fólk til að taka þátt í því að minnka magn sorps sem fer óflokkað í heimilistunnuna hefur Náttúran gert Endurvinnslukort en það er kort hér á vefnum sem sýnir þér alltaf hvar næsti grenndargámur eða endurvinnslustöð í þínu næsta nágrenni er að finna og segir þér einnig hverju er tekið á móti þar. Stöðugt er unnið að uppfærslum í samvinnu við þjónustuaðila á hverju landssvæði þannig að Endurvinnslukortið nýtist öllum alltaf.

Dæmi um birtingu á móttöku endurvinnanlegs sorps í grenndargáma á Endurvinnslukortinu:

Til að staðsetja grenndargáma og aðra móttökustaði fyrir endurvinnanlegt sorp finnur þú póstfangið og smellir á litla Íslandsmerkið eða götuheitið/staðarheitið sem þú vilt sjá nákvæma staðsetningu á á korti. Til að sjá hvað hver stöð tekur á móti er rennt lauslega yfir Fenúrmerkin eða gámatáknin en þá birtist texti sem lýsir Fenúrflokknum eða hvað má setja í grenndargáminn.

Hafir þú einhverjar athugasemdir eða hugmyndir um hvernig þú vilt sjá kortið þróast þá hafðu samband við Guðrúnu Tryggvadóttur í síma 483 1500 eða skrifaðu okkur á nature@nature.is.




Bewertung

Kategorien:

Kommentar

Pétur - Samstag 12. September, 2009 Uhr 14:30:17

Plastílát eiga að fara í græna gáminn. Þarf ekki að skola þau áður ? Það er svolítið vesen.

Guðrún Tryggvadóttir - Samstag 12. September, 2009 Uhr 15:56:56

Vesen er afstætt hugtak. Ef maður geymir skítug plastílát í poka á milli ferða í grenndargáminn er hætt við óþolandi lykt. Það þarf auðvitað ekki að sápuþvo úr heitu vatni, bara skola.

2 Kommentar:

Kommentiere

Name:

Kommentare:


Bitte lösen Sie die matematische Aufgabe hier oben und schreibe die Antwort in das Feld.
Gemacht um die menschliche herkunft des Textes zu sichern

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Der Natur-Markt

Wie kaufe ich beim Natur-Markt ein?
  • Kategorien
  • Korb
  • Suche nach Waren
  • Normen
  • Bedingungen
Indicator

Ähnliche Texte:

Die Umwelt: Einkauf und Entsorgung [199]

Grüne Seiten:

Einkauf und Entsorgung [2]

Neue Kommentare:

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoöl anstatt Augencremen
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

Fréttir frá: