05.09.2010 kl. 12:19
Ljósanótt
Í tilefni af Ljósanótt í Reykjanesbæ verð nýtt hringtorg á Reykjanesbraut við Grænás, opnað föstudaginn 03.09.2010, kl. 10:00.
Torgið verður opið yfir helgina en aðliggjandi götum verður lokað aftur eftir helgina.
Búist er við að framkvæmdum verði að mestu lokið um miðjan september.
Framkvæmdir og viðhald
Verið er að gera hringtorg á Reykjanesbraut við Grænás. Umferð er beint um á hjáleið fram hjá vinnusvæðinu.
Unnið er að tvöföldun Hringvegar (1) í Mosfellsbæ, frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi.
Nokkuð víða er unnið að vegavinnu og yfirlögnum á slitlagi, með tilheyrandi lausamöl og steinkasti. Vegfarendur eru eindregið beðnir að aka varlega um vinnusvæðin og virða merkingar um hámarkshraða.
Akstur á hálendisvegum
Þeir sem ætla að aka um hálendið eru beðnir að fullvissa sig um að þeir hafi nógu stór og öflug ökutæki til að fara þær leiðir sem þeir hafa í huga og kanna vatnsmagn í ám ef vöð eru á leiðinni en vatnsmagn í ám á hálendinu er nú með meira móti.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingumHeimild:
Vegagerðin