03.02.2012 kl. 21:59
Ábending frá veðurfræðing fyrir kvöldið og nóttina
Versnandi veður á fjallvegum um vestan- og norðvestanvert landið seint í kvöld, hríðarveður og slæmt skyggni verður fram á nóttina um leið og skil lægðar ganga yfir. Búast má við hviðum allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli frá því um kl. 21 til 22 í kvöld og fram á nóttina. Eins um svipað leyti undir Eyjafjöllum og litlu síðar í Öræfasveit.
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru á Sandskeiði og hálka og skafrenningur á Hellisheiði en hálka í Þrengslum. Hálka eða hálkublettir eru í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslum.
Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, hálka eða hálkublettir víðast hvar á öðrum leiðum.
Á Vestfjörðum er flughálka frá Bjarnafirði að Gjögri. Hálka eða hálkublettir eru á öðrum leiðum á Vestfjörðum.
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir á flestum leiðum og hálka á Vatnsskarði.
Á Norðausturlandi er flughálka á Hólasandi. Hálka er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum annars eru hálkublettir víða.
Á Austurlandi eru hálkublettir á Breiðdalsheiði en aðrar leiðir eru greiðfærar.
Á Suðausturlandi er allar helstu leiðir greiðfærar.
Framkvæmdir
Í dag, föstudaginn 3. febrúar, stendur til að fjarlægja undirslátt undan brúargólfi göngubrúar yfir Vesturlandsveg við Krikahverfi í Mosfellsbæ. Því þarf að loka þar fyrir umferð frá Reykjavík milli kl. 10:00 og 13:00. Lokað verður annarsvegar við hringtorg að Lágafelli og hins vegar við hringtorg við Hafravatnsveg. Notuð verður hjáleið um Bjarkarholt - Háholt.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á nokkrum vegum á Austurlandi og eins á Suðausturlandi alveg vestur að Hvolsvelli.
Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.
Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingumHeimild:
Vegagerðin