
Beim Anklicken der Gegenstände auf dem Bild erscheinen weitere Informationen
Samgöngur og samskipti
Samgöngur er stórt orð og á við fjölmarga þætti sem oft liggja ekki ljósir fyrir. Undir samgöngur falla samgöngukerfi fyrir bifreiðar, hjólreiðar og önnur farartæki, svokallað vegakerfi. Samgöngur eru einnig utan vegakerfisins þ.e. flug-samgöngur, skipa-samgöngur, fjarskipti, veraldarvefurinn og öll netsamskipti auk póst- og símaþjónustu. Samgöngur og samskipti eru því í nútímaþjóðfélagi samofin hugtök sem eru bæði af efnislegum og rafboðalegum toga auk þess sem mannleg samskipti eiga þar stóran hlut að máli.
Einkabíllinn skapar stór vandamál í vestrænum samfélögum. Venjulegur bíll losar krabbameinsvaldandi efni út um púströrið. Á meðal þeirra eru efni eins og tólúen, bensen, formaldehýð og PAH-efni. Það er því afar óhollt að anda því að sér sem frá bílnum kemur. Um er að ræða svipaða samsetningu efna og eru í tóbaksreyk. Hægt er að velja bíla sem losa minna af eiturefnum og eyða minna t.a.m. tvinnbíla, metanbíla, etanólbíla og vetnisbíla (þegar að þeir verða algengari). Plug-in rafmagnsbílar hafa verið kynntir og eru að verða kostur en þá er hægt að setja bílinn sinn í samband á nóttinni fyrir keyrslu næsta dags. Allt bendir til að heimurinn sé vaknaður af værum blundi og mun umhverfisvænni bílar keyri um götur heimsins innan fárra ára.
Flutningar með skipum, vöruflutningabílum og flugvélum eru einnig stór mengunarvaldur. Það er því umhverfsvænna að kaupa frekar það sem ekki þarf að flytja langar leiðir.
Dæmi: Flutningur ávaxtar frá Nýja Sjálandi með flugi til Íslands losar um fimmfalda þyngd hans af koltvíoxíði. Skipaflutningar losa einnig mikið magn koltvíoxíðs auk þess sem olía getur borist út í hafið. Það er því tvímælalaust umhverfisvænast að kaupa þær vörur sem eru framleiddar innanlands. Flugvélar brenna nú þegar um 130 milljónum tonna af flugvélaeldsneyti á ári hverju.
En hvað er hægt að taka til bragðs? Að sögn sérfræðinga er það eina sem hægt er að gera í stöðunni að hanna umhverfisvænar flugvélar aftur frá grunni og draga úr flugumferð. Hægt er að nota t.d. stóra túrbóhreyfla í staðinn fyrir þotuhreyfla eða svokallaða opna snúningshreyfla. Með notkun þessara hreyfla mætti minnka eldsneytisnotkun um þriðjung.
Það getur verið umhverfisvænna að ferðast innanlands en fljúga yfir hálfan hnöttinn. Taktu þér tíma til að kynnast undrum íslenskrar náttúru, upplifa landið. Tilvalið er að blanda saman bílferðum, hjólreiðum og gönguferðum.
Þar sem almenningssamgöngur eru fyrir hendi er tilvalið að nota þær. Að ferðast með strætó eða rútu getur verið mun þægilegri leið til að komast á milli staða og sannarlega umhverfisvænna. Mikil umræða hefur verið á undanförnum árum um það hvernig hægt sé að fá fólk til að stíga út úr einkabílunum og nota almenningssamgöngur. Í kjölfar þess að fyrir nokkrum árum fengu nemendur ókeypis í strætó í nokkrum bæjarfélögum jókst notkun vagnanna til muna, sem verður að teljast jákvæð þróun.
En samgöngur eru líka eins og nafnið bendir til „göngur“. Að ganga er ein heilsusamlegasta líkamsrækt sem hægt er að stunda. Hún hefur líka þann góða kost að hún færir okkur frá einum stað til annars. Notum lappirnar og göngum, skokkum, hlaupum eða hjólum.
Bewertung
Ähnliche Texte:
Reisedienst: Beförderung [9]
Die Gesellschaft: Kontakt [20]
Transport: Öffentlich [17]
Transport: Park´N Ride [5]
Transport: Luftfahrt [12]
Transport: Fahrräder & Service [22]
Transport: Fahrradfahren [49]
Transport: Erhöhtes Verkehrsrisiko [6]
Transport: Post Service [9]
Transport: Skip [8]
Transport: Teilen [6]
Transport: Lawinengefahr [5]
Transport: Öko-freundliche Fahrzeuge [73]
Transport: Öko-freundliche Fuhrwerke [69]
Transport: Leuchtturm [5]
Transport: Fahrzeuge [42]
Technik: Transport [72]
Grüne Seiten:
Ferðaþjónusta: Samgöngur [5]
Samfélagið: Samskipti [2]
Samgöngur: Almennings [2]
Samgöngur: Bílastæði við stoppistöð [13]
Samgöngur: Flug [1]
Samgöngur: Fyrir hjólið [2]
Samgöngur: Hjólreiðar [6]
Samgöngur: Hættuleg umferð [14]
Samgöngur: Skip [6]
Samgöngur: Skipti [1]
Samgöngur: Skriðuhætta [5]
Samgöngur: Vistvæn farartæki [13]
Samgöngur: Vistvæn ökutæki [10]
Samgöngur: Viti [112]
Samgöngur: Ökutæki [5]
Tækni: Samgöngur [6]
Neue Kommentare:
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















